Vísir.is - Samtökin '78 ósátt við hægt gengi ættleiðinga
SNÆRÓS SINDRADÓTTIR SKRIFAR

„Við erum búin að eiga í þessu samstarfi í fimm ár en það hefur lítið gerst,“ segir Unnsteinn Jóhannsson, formaður trúnaðarráðs Samtakanna '78 og meðlimur í samstarfshópi samtakanna og Íslenskrar ættleiðingar. Hann telur Íslenska ættleiðingu ekki standa sig í að koma á samningum við lönd sem ættleiða börn til samkynja para. Félagið segir að engin lönd bjóði upp á þá leið. Unnsteinn segir að Íslensk ættleiðing fari fram á að Samtökin '78 vinni forvinnuna sem þarf til að koma á samningum við erlend ríki. Vinnan yrði öll unnin í sjálfboðastarfi. Hann segir að forvinna þeirra hafi skilað þeim niðurstöðum að Argentína, Brasilía, Úrúgvæ, Mexíkó og sum fylki Bandaríkjanna heimili ættleiðingar til samkynhneigðra para. Þá liggur fyrir opin fyrirspurn til Suður-Afríku í utanríkisráðuneytinu.
Þegar land er fundið þarf að svara ítarlegum spurningalista um hvert land fyrir sig, þar á meðal um pólitískan og efnahagslegan stöðugleika landsins. „Ég set spurningarmerki við það að lítill hópur eigi að sitja og svara þessum listum í frítíma sínum, þegar samtök á borð við Íslenska ættleiðingu eru með þjónustusamning við íslenska ríkið,“ segir Unnsteinn.
Undir þetta tekur Auður Magndís Auðardóttir, framkvæmdastjóri Samtakanna '78. „Ef maður talar almennt um málefni hinseginfólks, þá er það alltaf þannig að allt sem hefur áunnist hefur í fyrstu litið út fyrir að vera vonlaust. Engin réttindi hinseginfólks hafa nokkurn tímann unnist með þessu viðhorfi. Það þarf að halda áfram að ýta, senda bréf og fyrirspurnir.“


Fylgdu okkur á Instagram