Fréttir

Fjölskylduhátíð í Kínverska sendiráðinu

Jin Zhijian sendiherra og sendiherrafrúin bjóða börnum ættleiddum frá Kína og fjölskyldu þeirra á fjölskylduhátíð laugardaginn 18.janúar kl 17:00 í Kínverska sendiráðinu, Bríetartúni 1, 105 Reykjavík og verður boðið uppá kvöldverðarhlaðborð. 

Þau hafa beðið Íslenska ættleiðingu að hafa milligöngu um að bjóða börnunum og fjölskyldum þeirra og til að áætla fjölda gesta biðjum við ykkur vinsamlegast um að skrá þá sem munu þiggja boðið fyrir 13.janúar. 

Sendiherrahjónunum langaði að kanna hvort einhver börn hefðu áhuga á að sýna hæfileika sína í móttökunni. Hafið endilega samband ef þið hafið áhuga á því. 


Svæði