Fréttir

Framboð til stjórnar Íslenskrar ættleiðingar

Á næsta aðalfundi félagsins sem haldinn verður miðvikudaginn 20.mars, kl. 20:00 eru tvö stjórnarsæti laus til kosningar og eru félagsmenn hvattir til að bjóða sig fram.

Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er samkvæmt samþykktum félagsins í síðasta lagi til kl. 20:00 miðvikudaginn 6.mars og skal senda framboð til félagsins á netfangið isadopt@isadopt.is.

Hér er hægt að lesa meira um aðalfund félagsins.


Svæði