Búlgaría gerir kröfu um fjórar eftirfylgniskýrslur, sem sendar eru á sex mánaða fresti fyrstu tvö árin eftir að barnið er komið til Íslands. Skýrslurnar skulu gerðar af félagsráðgjafa, og skulu þær vera notarius og apostillu staðfestingarstimplaðar. Skýrslurnar eru sendar á ensku til Happy Child, sem sér um þýðingu og sendir áfram á dómsmálaráðuneyti Búlgaríu.
Flýtilyklar
Eftirfylgd
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna. Fyrir tilstuðlan félagsins hafa ríflega 600 munaðarlaus börn eignast fjölskyldu á Íslandi.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 3.500 krónur fyrir einstakling.