Fréttir

40 ára afmæli

Þann 15. janúar 1978 kom fjöldi áhugamanna um ættleiðingar saman í Norrænahúsinu til skrafs og ráðagerða. Á fundinum var félagið Ísland-Kórea stofnað en tilgangur félagsins var veita aðstoð til þeirra sem höfðu áhuga á að ættleiða börn frá Kóreu og vinna að félagslegum tengslum. Félagið Ísland-Kórea var svo sameinað félaginu Ísland-Guatemala undir nafni Íslenskrar ættleiðingar.

Frumkvöðlarnir voru brattir þegar þeir skunduðu í Norrænahúsið og er stofnfundargerð félagsins eftirfarandi:

Stofnfundur

Stofnfundur félagsins Ísland - Kórea, haldinn í Norræna húsinu 15. janúar 1978 kl. 16:00.
Unnur Jónsdóttir setti fundinn fyrir hönd undirbúningsnefndar, og gerði grein fyrir aðdraganda stofnunar félagsins, sem er i stuttu máli þessi:
Fyrir u.þ.b. ári síðan var haldinn fundur foreldra Kóreubarna og á honum skipuð 3ja manna nefnd er vinna skyldi að stofnun félagsskapar fólks, sem á eða vill ættleiða börn frá Kóreu, þar sem það gæti rætt viðhorf sín og vandamál. Nefndina skipuðu þau: Unnur Jónsdóttir, Norma Norðdahl og Haukur Dór Sturluson. Nefndin lagði eftirfarandi fyrir fundinn:

Uppkast að samþykktum fyrir félagið Ísland - Kórea.

  1. Félagið heitir Ísland - Kórea
  2. Tilganur þess er:
    a) að stuðla að gagnkvæmum menningar- og félagslegum tengslum Íslands og Kóreu.
    b) að veita aðstoð foreldrum, sem óska að ættleiða börn fr aKóreu, eða hafa gert það.
    c) að efla tengsl með þeim fjölskyldum, sem ættleitt hafa börn frá Kóreu.
  3. Félagar geta allir orðið, sem náð hafa lögaldri og óska að vinna að málefnum félagsins.
  4. Stjórnin er skipuð: formanni, gjaldkera og ritara og skulu þeir kosnir á aðalfundi, ár hvert. Þá skal einnig kjósa tvo varamenn.
  5. Aðalfundur skal haldinn árlega, ekki síðar en í október og skal hann boðaður skriflega með minnst 4ra vikna fyrirvara. Á aðalfundi skal fráfarandi stjórn gera grein fyrir störfum sínum og leggja fram endurskoðaða reikninga. Þá skulu þar kosin: stjórn, varamenn og tveir endurskoðendur. Aðalfundur ákveður árgjald, hverju sinni.
  6. Samþykktum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf til þess samþykki 2/3 hluta fundarmanna, eða hreinan meirihluta félagsmanna.
  7. Ákvæði til bráðabirgða: Stjórn sú sem kjörin verður á stofnfundi í ársbyrjun 1978 skal boða til aðalfundar félagsins ekki síðar en í október 1978 og skal þa fara fram stjórnarkjör og önnur aðalfundarstörf.

Elías Kristjánsson gerði þa breytingatillögu að c-lið 2. greinar yrði sleppt. Tillagan var felld.
Lögin voru svo síðan rædd nokkuð og síðan samþykkt samhljóða.
Þá var gengið til kosningar stjórar og trúnaðarmanna. Aðeins ein tillaga kom fram og var hún samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

Stjórnina skipa:
Gylfi Már Guðjónsson formaður
Ástrún Jónsdóttir gjaldkeri
Ágústa Bárðardóttir ritari

Varamenn:
Unnur Jónsdóttir
Njöður P. Njarðvík

Endurskoðendur:
Sigurður Sigurðsson
Elías Kristjánsson

Félagsgjald var ákveðið kr. 2000.- pr. mann á ári.

Loks hófust almennar umræður og var þá einkum rætt um stöðvun þá, sem Kóresk yfirvöld hafa sett á ættleiðingar barna til Íslands og hvaða leiðir væur til úrbóta. Fram kom að samband hefur verið haft við utanríkisráðherra vegna málsins og mun hann hafa falið Pétri Eggerz að annast um það. Hann mun hafa óskað eftir formlegri beiðni skriflega og var nýkjörinni stjórn falið að skrifa ráðuneytinu umrætt bréf.
Ýmislegt fleira bar á góma á fundinum og skiptist fólk á upplýsingum. Fundinn sóttu u.þ.b. 30 manns.
Vésteinn Ólason var skipaður fundarstjóri og Gylfi Már Guðjónsson ritari, en að loknu stjórnarkjöri skiptu þeir um hlutverk.

Fundi slitið 17:45.

Gylfi Már Guðjónsson


Svæði