Spurt og svarað


Alþjóðlegar fjölskylduættleiðingar
Erlendur ríkisborgari eða fyrrum erlendur ríkisborgari sem á fasta búsetu á Íslandi getur sótt um alþjóðlega fjölskylduættleiðingu á tilteknu barni sem er umsækjanda náskylt og er búsett í upprunalandi hans. 
Íslensk ættleiðing hefur ekki milligöngu um slíkar ættleiðingar og er það í höndum sýslumannsembættis á höfuðborgarsvæðinu.
Frekari upplýsingar er að finna á vef sýslumannsembættisins.

Hægt er að hafa samband við fjölskyldudeild hjá sýslumannsembættinu í síma 458-2000 eða senda þeim tölvupóst á netfangið fjolskylda@syslumenn.is

Að gerast fósturforeldri
Íslensk ættleiðing sér ekki um milligöngu í fósturmálum.

Þeir sem óska eftir því að taka barn í fóstur geta haft samband við Barna- og fjölskyldustofu í síma 530-2600 eða á netfangið bofs@bofs.is til að fá upplýsingar.

 

Svæði