Fréttir

Aðalfundi frestað vegna COVID-19

Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er í samfélaginu vegna COVID-19 veirunnar hefur stjórn Íslenskrar ættleiðingar ákveðið að fresta aðalfundi félagsins sem átti að fara fram fimmtudaginn 19. mars 2020. Þessi ákvörðun var tekin á stjórnarfundi í gærkvöldi, 12. mars 2020.

Nýtt fundarboð:
Aðalfundur Íslenskrar ættleiðingar verður haldinn fimmtudaginn 16.apríl 2020 kl. 20:00 í húsnæði Framvegis, miðstöð símenntunar, Skeifunni 11b, 108 Reykjavík.

Samkvæmt samþykktum félagsins er dagskrá fundarins sem hér segir:

1. Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt athugasemdum endurskoðanda félagsins skal lagður fram til samþykktar. 
3. Kjör stjórnar.
4. Ákvörðun árgjalds.
5. Breytingar á samþykktum félagsins. 
6. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.

Um stjórnarkjör:
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum: Formanni, varaformanni og fimm meðstjórnendum. Kosning stjórnarmanna ræðst af atkvæðamagni. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar. Kosning stjórnar fer fram á aðalfundi ár hvert eða aukaaðalfundi. Hluta stjórnarmanna skal kjósa árlega til tveggja ára í senn, þrjá annað árið og fjóra á því næsta. 

Um breytingar á samþykktum félagsins:
Skv. 7 gr. samþykktum félagsins skulu tillögur að breytingu á þeim berast skriflega eigi síðar en 31. janúar ár hvert. 
Ein breytingartillaga barst á 7. grein í samþykktum félagsins.
Eftir breytingu yrði 7 gr. svohljóðandi. 

7. grein
Aðalfundur
Aðalfundur skal haldinn fyrir marslok ár hvert. Skal hann boðaður bréflega eða með öðrum sannanlegum hætti með minnst þriggja vikna fyrirvara. Til aukaaðalfundar skal boða með sama fyrirkomulagi og til aðalfundar samkvæmt 7. mgr.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt athugasemdum endurskoðanda félagsins skal lagður fram til samþykktar.
Gjaldskrá félagsins. 
Kjör stjórnar.
Ákvörðun árgjalds.
Breytingar á samþykktum félagsins.
Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Breytingar á stjórn félagsins skal tilkynna dómsmálaráðuneytinu áður en 14 dagar eru liðnir.
Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins skulu berast stjórn félagsins skriflega í síðasta lagi 31. janúar ár hvert og skulu þær tilgreindar í fundarboði.
Framboð til stjórnarkjörs skulu berast skriflega til skrifstofu félagsins í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund.

Aukafundi skal halda eftir ákvörðun stjórnar eða að kröfu endurskoðenda eða 2/3 félagsmanna. Skulu þeir boðaðir bréflega eða með öðrum sannanlegum hætti með minnst tveggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal koma fram tilefni fundarins.  

Úr samþykktum Íslenskrar ættleiðingar

Vakin er athygli á að framboðsfrestur til stjórnarkjörs er samkvæmt samþykktum félagsins til klukkan 20:00 þann 2.apríl 2020 og skal senda framboð til félagsins á netfangið isadopt@isadopt.is

 


Svæði