Aðalfundur Íslenskrar ættleiðingar 19. mars 2026
Stjórn ÍÆ hvetur félagsmenn til að mæta á aðalfund félagsins eftir mánuð, eða fimmtudaginn 19. mars kl. 20.00, og láta sig málaflokkinn varða. Breytt staða félagsins verður áfram til umræðu. Fundurinn verður haldinn í Rafmennt, Stórhöfða 27.
Tveir núverandi stjórnarmenn láta af störfum eftir óeigngjarnt starf í þágu félagins og þarf því að fylla að lágmarki tvö sæti í stjórn. Heimild er skv. samþykktum félagsins að hafa 7 stjórnarmeðlimi, en að lágmarki 5. Við óskum sérstaklega eftir framboði frá lögfræðimenntuðum einstaklingi enda er gert ráð fyrir því í samþykktum ÍÆ og lögum um ættleiðingarfélög. Stjórnarmenn skulu hafa þekkingu á þeim málum er varða ættleiðingar á erlendum börnum.
Fundurinn verður haldinn í streymi fyrir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld.


Fylgdu okkur á Instagram