Fréttir

Aðalfundur Íslenskrar ættleiðingar

Fimmtudaginn 17.mars 2022 var haldinn aðalfundur félagsins í húsnæði Framvegis að Borgartúni 20.

Mætt voru af hálfu stjórnar:  Lísa Björg Lárusdóttir sitjandi formaður, Berglind Glóð Garðarsdóttir, Brynja Dan Gunnarsdóttir, Tinna Þórarinsdóttir. Fjarverandi voru: Dylan Herrera og Sigurður Halldór Jesson.
Mætt voru af hálfu starfsfólks skrifstofu: Elísabet Hrund Salvarsdóttir, framkvæmdarstjóri, Ragnheiður Davíðsdóttir, verkefnastjóri og Rut Sigurðardóttir, félagsráðgjafi.
Fundargerð aðalfundar ritaði: Ragnheiður Davíðsdóttir 

Ný stjórn var kjörin og bjóðum við nýja stjórnarmenn velkomna og þökkum þeim sem létu af störfum. Eins viljum við koma á framfæri þakklæti til fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins, Kristins Ingvarssonar.

Ný stjórn Íslenskrar ættleiðingar eru skipuð 7 manns:

Berglind Glóð Garðarsdóttir
Brynja Dan Gunnarsdóttir
Gylfi Már Ágústsson
Lísa Björg Lárusdóttir
Svandís Sigurðardóttir
Tinna Þórarinsdóttir
Örn Haraldsson

Hægt er að skoða fundargerð aðalfundar hér

Ársreikningur félagsins mun vera birtur á heimasíðunni á næstu dögum.


Svæði