Fréttir

Adoption Awareness Week

Í þessari viku, fagnar Íslensk ættleiðing norrænni ættleiðingarviku, en ættleiðingarfélögin á norðurlöndunum hafa fagnað ættleiðingum sérstaklega í einni viku á ári síðustu ár. Síðustu ár hefur þessi vika haft nafnið Adoption Joy Week en eftir að gagnrýni kom upp að ekki allir telji ættleiðingu sem gleðiefni hefur nafninu verið breytt í Adoption Awareness Week, @AdoptionAwareness, þar sem vakin er athygli á hinum ýmsu hliðum ættleiðinga.

Á hverjum degi verður sett inn efni tengt ættleiðingu og félagsmenn geta sett inn á facebook síðu sína mynd, teikningu eða minningu sem tengist ættleiðingu og tengt færsluna við Íslenska ættleiðingu og #adoptionawareness.


Svæði