Fréttir

Mbl - Ættleiðingar flytjast til Reykjavíkur

Embætti sýslumannsins í Reykjavík mbl.is/Ómar Ó
Embætti sýslumannsins í Reykjavík mbl.is/Ómar Ó

Á morgun, gamlársdag, gengur í gildi ný reglugerð innanríkisráðherra um veitingu leyfa til ættleiðinga. Frá og með 1. janúar 2012 verður sýslumanninum í Reykjavík falið að annast veitingu leyfa til ættleiðinga.

Með reglugerð frá árinu 2006 var sýslumanninum í Búðardal falið að annast leyfi til ættleiðinga en með hinni nýju reglugerð flytjast slíkar leyfisveitingar til sýslumannsembættisins í Reykjavík. Sýslumaðurinn í Reykjavík tekur við meðferð mála sem kann að vera ólokið 1. janúar 2012 hjá sýslumanninum í Búðardal og lýkur afgreiðslu þeirra. Nýjum umsóknum um ættleiðingar og forsamþykki til ættleiðingar á erlendum börnum skal beint til sýslumannsins í Reykjavík frá og með 1. janúar 2012.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/12/30/ttleidingar_flytjast_til_reykjavikur/


Svæði