Fréttir

Mbl - Einhleypir ættleiða að nýju

Reglum var breytt í Kína árið 2007. Reuters
Reglum var breytt í Kína árið 2007. Reuters

Eftir reglubreytingu í Kína í ársbyrjun 2007 var talið að Íslensk ættleiðing gæti ekki sent umsóknir frá einhleypum til nokkurs lands. Við nánari skoðun var ákveðið að láta á það reyna og ættleiddi einhleyp kona fyrr á þessu ári barn frá Tékklandi, önnur frá Tógó og innan skamms sú þriðja.

Frá 2007 var umsóknum frá einhleypum raðað á svokallaðan hliðarlista, þrátt fyrir að í íslenskum reglum sé tekið fram að heimilt sé að veita einhleypum heimild til að ættleiða ef talið er ótvírætt að það sé barni til hagsbóta og sá sem ættleiðir sé talin sérstaklega hæfur umfram aðra vegna eiginleika sinna eða reynslu.

Hliðarlistarnir voru viðhafðir í fjögur ár eða fram á mitt ár 2010. Á þessu tímabili söfnuðust upp nöfn um 30 einhleypra einstaklinga sem höfðu áhuga á að ættleiða barn en fengu ekki tækifæri til að hefja ættleiðingarferlið.

„Nú vitum við að öll löndin sem ÍÆ er í samskiptum við, Tógó, Tékkland, Kína og Kólumbía, taka við umsóknum frá einhleypum en með mismunandi skilyrðum. Nokkrar umsóknir frá einhleypum eru nú erlendis eða á leiðinni þangað.

Það eru auðvitað dásamlegar fréttir fyrir einhleypa að fá vitneskju um það að ef þeir eru taldir sérstaklega hæfir eigi þeir möguleika á að ættleiða barn. Þetta eru ekki síður góðar fréttir fyrir þá sem vinna við ættleiðingarferlið því þeim ber alltaf að hafa hagsmuni barnanna í fyrirrúmi og miklu máli skiptir að hæfustu einstaklingarnir séu ætíð valdir sem foreldrar fyrir börnin,“ segir í tilkynningu frá Herði Svavarssyni, formanni Íslenskrar ættleiðingar.


Svæði