Fréttir

mbl.is - Leik­skóla­börn á EM #Adoptionjoy

Íslensk ættleiðing fylgist spennt með Evrópumeistaramótinu í skólaskák. Gangi þér vel Kristján Freyr og félagar!

Keppendur Laufásborgar. Fremri röð frá vinstri: Kristján Freyr Páluson, Aðalgeir ...
Kepp­end­ur Lauf­ás­borg­ar. Fremri röð frá vinstri: Kristján Freyr Pálu­son, Aðal­geir Emil Ara­son Kjær­bo, Rúna Guðbjarg­ar­dótt­ir Peter­sen, Katrín Ronja Stef­áns­dótt­ir og Ægir Gísla­son. Aft­ari röð frá vinstri: Día Ben Krist­ín­ar­dótt­ir, Tóm­as Friðgeirs­son, Inga Jóna Haar­de Vign­is­dótt­ir og Em­il­ía Embla Bald­vins­dótt­ir Berg­lind­ar­dótt­ir. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
Morgunblaðið

Steinþór Guðbjarts­son

steint­hor@mbl.is

Börn á Lauf­ás­borg taka þátt í Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í skóla­skák, sem hefst í Rúm­en­íu í lok maí. Skól­inn átti full­trúa á heims­meist­ara­móti barna í Alban­íu í fyrra og er fyrsti leik­skóli heims til þess að fara á bæði mót­in.

Omar Salama, FIDE-skák­k­enn­ari, kom skák­k­ennsl­unni á Lauf­ás­borg á lagg­irn­ar 2008 og hef­ur séð um hana síðan. Hann seg­ir að í byrj­un hafi mark­miðið verið að kynna tafl­menn­ina fyr­ir börn­un­um og kenna þeim mann­gang­inn. Um val hafi verið að ræða rétt eins og til dæm­is að leika sér með kubba eða fara út í garð. Árið 2017 hafi verið ákveðið að taka þátt í grunn­skóla­móti barna níu ára og yngri.

„Mark­miðið okk­ar hef­ur alltaf verið að leggja áherslu á gleði og hafa gam­an,“ seg­ir Omar. „Árang­ur barn­anna kom á óvart, þau lentu í 14. sæti og í kjöl­farið ákváðum við að taka þátt í flokki sjö ára og yngri í heims­meist­ara­mót­inu í skóla­skák.“

mbl.is - Leik­skóla­börn á EM


Svæði