Fréttir

Andlát: Hörður Svavarsson fv. formaður ÍÆ

Hörður Svavarsson fv. formaður Íslenskrar ættleiðingar 2009-2016 er látinn, 65 ára að aldri. Hann vann mikið brautryðjendastarf og átti stóran þátt í að tryggja ættleiðingarmálaflokknum það fjármagn sem það átti skilið og vakti það heimsathygli.

 

Hörður Svavars­son, leik­skóla­stjóri Aðalþings, lést á krabba­meins­deild Land­spít­al­ans 19. júní síðastliðinn eft­ir skamma sjúkra­hús­legu, 65 ára að aldri.

Hörður var kjörin í stjórn Íslenskrar ættleiðingar á aðalfundi árið 2009 og tók svo við sem formaður stjórnar, en hann var formaður félagsins fram að aðalfundi árið 2016.

Á þeim tíma sem Hörður var formaður vann hann ómetanlegt starf við að auka fjárframlag til ættleiðinga og má þakka honum fyrir þá miklu vinnu áður fyrirkomulag komst á laggirnar með þjónustusamningi innanríkisráðuneytisins árið 2013. Þá samþykkti Alþingi þrefalda hækkun á endurgjaldi ríkisins til ættleiðingafélagsins í nóvember 2013, en fyrir þann tíma hafði félagið verið í miklum fjárhagserfiðleikum. Þessum breytingum var mikið fagnað og var eins dæmi á sínum tíma í heiminum, þ.e. þetta samstarf á milli ættleiðingarfélags og ríkis.

Hörður var einnig í mörg ár leiðbeinandi á námskeiðinu „Er ættleiðing fyrir mig?,“ þar sem hann miðlaði af sinni þekkingu og reynslu.

Stjórn og starfsfólk Íslenskrar ættleiðingar þakkar Herði fyrir sitt framlag til ættleiðingarmálaflokksins og sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu hans.

Sagt er frá andláti Harðar á öllum helstu miðlum:
Vísir: Hörður Svavars­son er látinn - Vísir
Mbl: Andlát: Hörður Svavarsson
DV: Hörður leikskólastjóri er látinn - DV


Svæði