Fréttir

FANN ALSYSTUR SÍNA MEÐ DNA

Karólína (hægri) og Marin (vinstri)Karólína Xin Fei var rúmlega eins árs þegar hún var ættleidd af foreldrum sínum, Kristínu Valdemarsdóttur og Ágústi Hlyni Guðmundssyni frá Yangjiang í Kína og kom hún með þeim til Íslands árið 2009 en áður höfðu þau ættleitt aðra dóttur, Matthildi, árið 2005. Kristín og Karólína héldu í síðustu viku, þann 20. maí, kynningu fyrir félagsmenn ÍÆ og aðra áhugasama um það ævintýri sem þær hafa upplifað með því að senda DNA sýni í erlenda gagnabanka. Þær systur hafa ávallt verið áhugasamar um uppruna sinn og árið 2021 fengu þær Myheritage DNA próf í afmælisgjöf frá foreldrum sínum en ekkert kom út úr því prófi. Einhverju síðar var þeim bent á að það gæti verið góð hugmynd að setja niðurstöður DNA prófsins í alþjóðlegan gagnabankann GEDMatch, sem tekur við DNA niðurstöðum óháð því fyrirtæki sem þær koma frá, en ekkert gerðist heldur.

Tæpum tveimur árum seinna, eða í maí 2023 fékk Kristín tölvupóst seint að kvöldi frá 18 ára stúlku að nafni Marin Russell sem var að leita að ættingjum og að það virtist vera sem það væru tengsl. Eftir að hafa kannað málið segir Kristín að enginn vafi hafa leikið á því að Karólína og Marin væru líffræðilegar alsystur. 

HITTUST Í EIGIN PERSÓNU

Karólína og Marin áttu fyrsta myndsímtalið í júní 2023 og ári síðar ferðaðist fjölskyldan frá Íslandi til Oregon-fylkis í Bandaríkjunum til að hitta Russell fjölskylduna. Marin var ættleidd frá borginni Yangxi en það er klukkutími á milli þeirrar borgar og Yangjiang þaðan sem Karólína kom frá. Það kom þeim á óvart að báðar eru þær frekar feimnar og einnig með nokkuð mikið ofnæmi. Tengslin eru komin til að vera og eru þær systur enn að kynnast en segja má að þær hafi báðar eignast tvær nýjar systur þar sem bæði Karólína og Marin eigi hvor um sig aðrar systur. Russel fjölskyldan stefnir á að koma til Íslands áður en langt um líður og mögulega koma fjölskyldurnar til með að ferðast saman til Kína í framtíðinni.

LÍKURNAR EKKI MIKLAR
Kristín segir líkurnar á að finna skyldmenni í gegnum DNA próf ekki vera miklar sökum þess hve fáir hafi tekið próf og að fyrirtækin séu mörg sem séu að prófa og að DNA gagnabankarnir séu mismunandi eftir löndum. Fólk þurfi því að stilla væntingum í hóf en einnig séu margar siðferðislegar spurningar sem fólk þurfi að velta fyrir sér. Hún mælir samt með að fólk taki svona próf og segir: ,,Fólk þarf að eiga miða í lottóinu til að vinna!"
Kristín hefur útbúið bækling út frá fyrirlestrinum sem finna má finna á meðfylgjandi hlekk. Þótt kynningin hafi verið Kínamiðuð ætti hún að nýtast sem flestum - https://heyzine.com/flip-book/7516e4d72b.html


Allskonar systur

Viðtal var við Kristínu og Karólínu í Mannlega þættinum á Rás 2 fyrir tveimur árum og má finna viðtalið hér: Fann alsystur sína með DNA-prófi - RÚV.is


Svæði