Foreldrafélag leikskólans á Aðalþingi hefur hafið Minningarsöfnun í nafni Harðar Svavarssonar
Hörður var formaður Íslenskrar ættleiðingar frá aðalfundi árið 2009 fram að aðalfundi árið 2016. Á þeim tíma sem Hörður var formaður vann hann ómetanlegt starf við að auka fjárframlag til ættleiðinga og má þakka honum fyrir þá miklu vinnu áður fyrirkomulag komst á laggirnar með þjónustusamningi innanríkisráðuneytisins árið 2013. Þá samþykkti Alþingi þrefalda hækkun á endurgjaldi ríkisins til ættleiðingafélagsins í nóvember 2013, en fyrir þann tíma hafði félagið verið í miklum fjárhagserfiðleikum. Þessum breytingum var mikið fagnað og var eins dæmi á sínum tíma í heiminum, þ.e. þetta samstarf á milli ættleiðingarfélags og ríkis.
Hörður var einnig í mörg ár leiðbeinandi á námskeiðinu „Er ættleiðing fyrir mig? “ þar sem hann miðlaði af sinni þekkingu og reynslu.
Hann vann mikið brautryðjendastarf og átti stóran þátt í að tryggja ættleiðingarmálaflokknum það fjármagn sem það átti skilið og vakti það heimsathygli.
Hörður Svavarsson, fyrrverandi leikskólastjóri á Aðalþingi til 15 ára, lést í júní á síðasta ári, 65 ára að aldri, eftir snarpa baráttu við krabbamein. Hörður sinnti starfi sínu af mikilli alúð og natni og byggði upp afar öflugt og metnaðarfullt leikskólastarf með frábæru starfsfólki.
Margir hafa haft samband og viljað heiðra minningu Harðar og það mikilvæga starf sem hann vann í gegnum árin. Í samstarfi við Kópavogsbæ stendur nú til að ráðast í endurbætur á leikskólalóðinni í sumar, þar sem bætt verður við og endurnýjuð leiktæki á meðan leikskólinn er í sumarfríi.
Foreldrafélag leikskólans hefur ákveðið að efna til söfnunar fyrir gróðurhúsi í nafni Harðar sem verður staðsett í bakgarði leikskólans og mun nýtast börnum til leiks og lærdóms. Hörður hafði lengi haft áhuga á að koma upp slíku gróðurhúsi og þykir okkur því sérstaklega viðeigandi að láta þá hugmynd hans, og teymisins á Aðalþingi, verða að veruleika. Í framtíðinni munu börnin þá geta ræktað plöntur og grænmeti í gróðurhúsinu í nafni sjálfbærni sem er samtvinnuð inn í allt leikskólastarfið.
Við hvetjum alla sem vilja taka þátt til að leggja sitt af mörkum með framlagi inn á reikning foreldrafélagsins, 0357-22-010454, kennitala 531109-1980, fyrir 10. júní.
Stefnt er að því að halda hátíðlega vígslu á lóð leikskólans í Aðalþingi síðsumars eða í byrjun hausts, þar sem ný leiktæki verða tekin í notkun og, vonandi, gróðurhúsið einnig opnað. Nánari tímasetning verður auglýst þegar nær dregur.


Fylgdu okkur á Instagram