Fyrirlestur um DNA upprunaleit
Þriðjudaginn 20. maí stendur Íslensk ættleiðing fyrir fræðsluerindi sem ber nafnið ,,Upprunaleit með hjálp DNA". Kristín Valdemarsdóttir og Karólína Xin Fei segja frá ævintýri sínu við að nota DNA til að leita að uppruna. Erindið var flutt síðast fyrir tveimur árum og fékk afar góðar undirtektir félagsmanna.
Öll eru velkomin en fólk er vinsamlegast beðið um að skrá sig.
Fræðslan hefst kl. 20:00, þriðjudaginn 20. maí, í sal Rafmenntar að Stórhöfða 27.
Frítt er fyrir félagsmenn en kostar 1.000 krónur fyrir aðra.
Einnig verður boðið uppá að horfa á erindið á netinu en þá þarf skráning að berast í síðasta lagi kl 15:00 sama dag og erindið er.
Boðið verður upp á léttar veitingar.