Fréttir

Gleðilegt sumar

Í dag er sumardagurinn fyrsti og við fögnum honum með sumargjöf.

Það hefur verið ákveðið að efla bókasafn félagsins á þessu ári og fjölga þar um nokkra titla. Leitað var til pasnefndar eftir tillögum en þar á bæ var strax stungið upp á bókinni Message from an Unknown Chinese Mother: Stories of Loss and Love.

Um bókina hafði Helga Magnea í Pasnefndinni þau orð að: hún væri eiginlega skyldulesning fyrir okkur foreldra barna sem ættleidd eru frá Kína, þrátt fyrir að vera mjög erfið lesning. Þetta er einstæð bók eftir höfundinn Xinran og upplýsingar þær sem eru í bókinni fær maður varla sannari.

 

 

Það er gaman að segja frá því að bókin barst okkur í dag á sumardaginn fyrsta. Góð byrjun á góðu sumri.


Svæði