Fréttir

Harðarhöll er orðin að veruleika

Harðarhöll
Harðarhöll

Í vor fór foreldrafélag leikskólans á Aðalþingi í Kópavogi af stað með Minningarsöfnun í nafni Harðar Svararssonar, fyrrum formanns Íslenskrar ættleiðingar. Söfnunin fékk mjög góðar viðtökur og hefur nú verið keypt gróðurhús sem komið hefur verið fyrir í bakgarði leikskólans í góðu samstarfi við Kópavogsbæ og mun það bera nafnið Harðarhöll, til minningar um Hörð. 

Nú er verið að fagna þessum áfanga og boðið er til opins húss á Aðalþingi fimmtudaginn 15.október kl. 17 - 18, þar sem Harðarhöll verður opnuð formlega. 

Foreldrafélagið vona að sem flestir sem þekktu Hörð og lögðu söfnunni lið sjái sér fært að koma, skoða Harðarhöll og eiga með þeim góða stund í minningu Harðar. 

Í heildina safnaðist 1,1 milljón og þess ber að geta að 177 þúsund krónur söfnuðust frá félagsmönnum og velunnurum Íslenskrar ættleiðingar enda snerti Hörður líf margra í gegnum óeigingjarnt og metnaðarfullt starf sitt í þágu félagsins. Það sem safnaðist var millifært á foreldrafélagið í júní síðastliðnum. 


Svæði