Fréttir

ÍÆ til Indlands og ráðherrann líka

Á næstu dögum halda fulltrúar Íslenskrar ættleiðingar til Indlands til viðræðna um ættleiðingarmál. Barnaheimili Anju Roy verður heimsótt eins og félagsmenn vita höfum við verið í samskiptum við heimili hennar í 25 ár og þaðan hafa 160 börn komið á þessum tíma.

Einnig verða setnir fundir og ráðstefna með Indverskum ættleiðingaryfirvöldum ern viðamiklar breytingar hafa staðaið yfir á uppbyggingu indverska ættleiðingarkerfisins og á sama tíma er unnið að endurnýjun á löggildingu ÍÆ í Indlandi.

Það er gaman að geta þess og merki um hve gott samstarf ÍÆ er við Innanríkisráðuneytið að æðstu menn ráðuneytisins taka þátt í ferðalaginu með okkur og hefur ráðherrann sjálfur, Ögmundur Jónasson, lýst yfir sérstökum áhuga á hitta Anju framkvæmdastjóra barnaheimilisins ISCR í Kolkata.

Við væntum þess að geta sagt fréttir frá fulltrúum ÍÆ á meðana á ferðalaginu stendur.


Svæði