Fréttir

Íslensk ættleiðing á Akureyri

Mætum öll.
Mætum öll.

Rakel Rán Sigurbjörnsdóttir heldur fyrirlesturinn "Mótun persónuleikans - áhrif fyrstu áranna".  Rakel Rán er með MA í fjölskyldumeðferð og hefur unnið með börnum frá fæðingu til sex ára og foreldrum þeirra. Rakel stundar nú framhaldsnám á meistarastigi við University of Massachusettes Boston. Í fyrri hluta fyrirlesturins er farið mikilvæg atriði varðandi heilaþroska barna, skipting heilans í gamla heila og nýja og hvernig taugatengingar verða til og hversu háður heilinn er umhverfi sínu og nánustu tengslaaðilum.  Í seinni hlutanum verður farið í mismunandi tengslagerðir fólks, örugga og óöruggar og hvernig þær geta haft áhrif á andlega og félagslega heilsu. Fjallað verður um hvernig hægt er að ýta undir tilfinningalega þrautsegju barna, sjálfstraust og vellíðan til lengri tíma.  Fyrirlesturinn hefst kl. 11:00.

Lárus H. Blöndal, sálfræðingur ÍÆ verður til viðtals frá kl. 10:00.

Fyrirlesturinn og ráðgjöfin verða í Verkmenntaskóla Akureyrar, Hringteig 2.  Gengið er inn vestan megin (átt að Hlíðarfjalli).

Skráning er á isadopt@isadopt.is. Fræðslan er ókeypis fyrir félagsmenn en kostar 1000 kr. fyrir utanfélagsmenn. Sálfræðivitölin eru ókeypis fyrir félagsmenn.

 


Svæði