Fréttir

Íslensk ættleiðing heimsækir Tékkland

Fulltrúar félagsins munu á næstunni leggja land undir fót og heimsækja miðstjórnvaldið í Tékklandi.  

Samstarfs Íslands og Tékklands hófst árið 2004 og fór hægt af stað. Árið 2007 var fyrsta barnið ættleitt frá Tékklandi til Íslands, en svo var nokkur bið eftir næstu börnum. Á árunum 2010 - 2013 voru tvö börn hvert ár ættleidd til Íslands frá Tékklandi. Síðastliðið ár voru svo ættleidd fjögur börn og þrjú börn á þessu ári. 

Vinnulag tékkneska miðstjórnvaldisins er um margt ólíkt því sem Íslensk ættleiðing hefur kynnst í gegnum tíðina. Þar er ekki unnið út frá aldri umsókna, þ.e. í Tékklandi er ekki eiginleg biðröð, heldur er matsnefnd sem parar saman umsækjendur við börnin sem hún vinnur fyrir. Það eru því ekki parað út frá aldri umsóknarinnar. 
Allt samstarf Íslenskrar ættleiðingar við upprunaríkin er byggt á trausti. En þar sem unnið er út frá pörun án þess að litið sé til aldurs umsóknar skiptir traust enn frekar máli. 

Það er því mikið ánægjuefni að Íslensk ættleiðing hefur tök á að heimsækja miðstjórnvaldið í Tékklandi og styrkja sambandið enn frekar. 

Vegna ferðarinnar mun skrifstofa félagsins verða lokuð frá 13. - 20. júní.


Svæði