Fréttir

Jólaball Íslenskrar ættleiðingar 10.desember

Jólaskemmtun fyrir alla fjölskylduna þann 10.desember 2023 kl. 14:00 - 16:00 í Safnaðarheimili Laugarneskirkju, 105 Reykjavík.*

Jólasveinar mæta vonandi á svæðið og við syngjum og dönsum saman í kringum jólatré við skemmtilegt undirspil. 
Veitingar eru innifaldar í verðinu og það er aldrei að vita hvað Sveinki verður með í pokanum sínum.

Það kostar aðeins 1.900 kr. fyrir félagsmenn og 800 kr. fyrir börn þeirra, en fyrir þá sem eru ekki félagsmenn kostar 3.500 kr. á mann.

Allir velkomnir - börn og foreldrar, ömmur og afar, frænkur og frændur og allir hinir.

 

 *síðasti skráningardagur er 5.desember 2023

 


Svæði