Fréttir

Komið að kveðjustund

Nú um mánaðarmótin mun Ragnheiður Davíðsdóttir verkefnastjóri láta af störfum, en hún hefur unnið hjá Íslenskri ættleiðingu síðan maí 2012, eða rúmlega 11 ár. Ragnheiður hefur sinnt starfi sínu af mikilli alúð og hefur komið að þeirri miklu þróun sem átt hefur sér stað á fræðslu og þjónustu við ættleidda og fjölskyldur þeirra. 

Íslensk ættleiðing þakkar Ragnheiði fyrir góð kynni og ánægjulegt samstarf á þessum 11 árum, og óskar henni alls hins besta í framtíðinni. 


Svæði