Fréttir

Mbl.is - „Þetta er dá­sam­leg lífs­reynsla“

Ester Ýr Jóns­dótt­ir. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
Ester Ýr Jóns­dótt­ir. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
Inn­lent | mbl | 3.8.2016 | 11:23 | Upp­fært 12:07

Ester Ýr Jóns­dótt­ir hleyp­ur 10 kíló­metra í Reykja­vík­ur­m­araþoni Íslands­banka og safn­ar áheit­um fyr­ir Íslenska ætt­leiðingu, en Ester og eig­inmaður henn­ar eignuðust sitt fyrsta barn síðastliðið haust, þegar þau ætt­leiddu dreng frá Tékklandi.

Son­ur­inn val­inn út frá for­eldr­un­um

Ester seg­ir nauðsyn­legt er að fara í gegn­um Íslenska ætt­leiðingu, ef ætt­leiða á er­lend­is frá. Ferli henn­ar hófst um mánaðamót­in janú­ar-fe­brú­ar 2014 og fengu þau svo­kallað for­samþykki frá sýslu­mann­in­um í Reykja­vík í júní sama ár. Hófst þá um­sókn­ar­ferlið fyr­ir um­sókn til Tékk­lands.

Spurð hvers vegna Tékk­land hafi orðið fyr­ir val­inu seg­ir Ester ekki úr svo mörg­um lönd­um að velja og að þeim hafi lit­ist vel á ferlið í Tékklandi. Þá sé mjög gott sam­band milli Íslensk­ar ætt­leiðing­ar og ætt­leiðinda­yf­ir­valda þar í landi og að hlut­falls­lega hafi óvenju mörg börn komið hingað til lands frá Tékklandi, miðað við önn­ur lönd.

„Tékk­arn­ir para for­eldra við börn­in. Þeir eru þarna með barn sem vant­ar fjöl­skyldu og horfa yfir alla um­sækj­end­ur sína og velja um­sækj­end­ur sem passa því barni best. Það er búið að taka alls kon­ar sál­fræðipróf og viðtöl. Við þurft­um að fara til tveggja sál­fræðinga og það voru mjög ít­ar­leg­ar skýrsl­ur gerðar um okk­ur. Út frá þeim, skap­gerð, áhuga­mál­um og öllu mögu­legu erum við síðan pöruð við okk­ar dreng.“

Ester ásamt syni sínum.
Ester ásamt syni sín­um. Skjá­skot/​Hlaupa­styrk­ur

 

Stóra jóla­gjöf­in

Þau hjón­in héldu síðan til Tékk­lands á síðasta ári og dvöldu þar í sex vik­ur áður en fjöl­skyld­an snéri heim til Íslands 22. des­em­ber í fyrra, með „stóru jóla­gjöf­ina“, eins og Ester orðar það.

„Við byrjuðum á því að funda með ætt­leiðing­ar­yf­ir­völd­um í Tékklandi í borg sem heit­ir Brno, sem er mjög aust­ar­lega í land­inu. Síðan fór­um við al­veg í vest­ur­hlut­ann í bæ sem heit­ir Most og þar er barna­heim­ili sem son­ur okk­ar var á. Við byrjuðum á að hitta sál­fræðing og fé­lags­fræðing og lækni og svo hitt­um við peyj­ann“, seg­ir Ester, en son­ur þeirra var þá rúm­lega tveggja ára gam­all.

„Við feng­um upp­lýs­ing­ar um hann á tveggja ára af­mæl­is­degi hans og vor­um far­in út tveim­ur vik­um seinna.“

Í janú­ar hófu þau síðan að mæta til Íslenskr­ar ætt­leiðing­ar ann­an hvern fimmtu­dag og eru þakk­lát fyr­ir þann stuðning sem fæst þar. „Þá eru fjöl­skyldu­morgn­ar, þar sem for­eldr­ar sem eru í fæðinga­or­lofi geta mætt og spjallað sam­an og krakk­arn­ir geta leikið sér sam­an. Það er nátt­úr­lega frá­bært að hitta fólk sem hef­ur sömu reynslu.“

„Það eru kannski ákveðin atriði sem þurf­um að tak­ast á við í upp­eld­inu sem aðrir þurfa ekki að tak­ast á við. Nýbakaðir for­eldr­ar hafa yf­ir­leitt unga­börn í hönd­un­um en við höf­um svo­lítið stærri börn sem hafa mein­ing­ar og ákveðna lífs­reynslu á bak­inu. Það er sál­fræðing­ur á staðnum sem maður get­ur spjallað við líka.“

Seg­ir vanta umræðu og kynn­ingu á mála­flokkn­um

Ester seg­ir mik­il­vægt að muna að ætt­leiðing sé fyrsta val hjá sum­um þegar kem­ur að barneign­um. Marg­ir vilji til dæm­is held­ur ætt­leiða en að reyna gla­sa­frjóvg­un.

„Við vor­um búin að reyna glasa áður. Við hefðum viljað kynna okk­ur ætt­leiðing­ar fyrr, en sam­fé­lagið er ein­hvern veg­inn þannig að það er talið eðli­legt að maður fari í gla­sa­frjóvg­un.“

„Hjá sum­um er þetta ein­hvern veg­inn síðasti kost­ur að ætt­leiða, en á alls ekki að vera það. Það vant­ar betri umræðu og meiri kynn­ingu á mála­flokkn­um, því þetta er dá­sam­leg lífs­reynsla.“

„Ég hvert fólk inni­lega til að kynna sér þenn­an mála­flokk. Það eru mjög marg­ir sem hafa gengið með og fætt sín börn og ætt­leiða líka, svo það eru alls kon­ar fjöl­skyld­ur sem verða til.“

Hleyp­ur í fjórða sinn

Hlaupið í ár verður ekki fyrsta Reykja­vík­ur­m­araþon Ester­ar, því hún hef­ur tekið þátt síðan 2013. Síðstu þrjú hlaup hef­ur hún safnað áheit­um við Sam­tök um en­dómetríósu, sem er sjúk­dóm­ur sem hún hrjá­ist sjálf af.

„En­dómetríósa er sjúk­dóm­ur sem hrjá­ir kon­ur. Þetta er mjög sárs­auka­full­ur sjúk­dóm­ur sem veld­ur ófrjó­semi í 40% til­fella.“

Ester seg­ir sam­tök­in veita kon­um með en­dómetríósu stuðning og berj­ast fyr­ir mál­efn­um kvenna með sjúk­dóm­inn. Þá veiti þau fjöl­skyld­um stuðning, því sjúk­dóm­ur­inn haf áhrif á fleiri en þá sem hann hafa.

„Það er erfitt að horfa upp á dótt­ur eða maka engj­ast um að kvöl­um kannski marga daga í mánuði.“

Reykja­vík­ur­m­araþon Íslands­banka fer fram 20. ág­úst næst­kom­andi. Hægt er að heita á Ester í gegn­um heimasíðu Hlaupa­styrks.

Mbl.is - „Þetta er dá­sam­leg lífs­reynsla“


Svæði