Námskeið fyrir börn og unglinga í maí
Þetta örnámskeið er hannað fyrir ættleidd ungmenni á aldrinum 10-18 ára og er skipt í tvö holl (19. og 20. maí næstkomandi frá 17.30-19.30). Kjörið tækifæri til að tengjast öðrum og hafa gaman en einnig líta aðeins inn á við og hlusta á aðra. Ekkert ungmenni þarf að tjá sig ef það vill það ekki en hugmyndin er að þessi hittingur verði kveikjan að öðru og meiru í haust.
Horft verður á myndbandsbúta, spjallað saman, farið í leiki og endað á pizzu.
Utanumhald námskeiðs er hjá ÍÆ í samstarfi við Sigríði Hlíf sviðsstjóri í Klettabæ.
Staðsetning verður auglýst síðar þar sem hún fer eftir skráðum fjölda ungmenna.
Skráning er HÉR til og með 15. maí 2026. Sama verð fyrir öll ungmenni, hvort sem foreldrar þeirra eru meðlimir í ÍÆ eða ekki en engu að síður má skrá sig í félagið HÉR.


Fylgdu okkur á Instagram