Námskeið um áhrif áfalla á tengsl og þroska 31. janúar 2026
Íslensk ættleiðing stendur fyrir námskeiði um áhrif áfalla á tengsl og þroska barna og ungmenna (Complex-/Developmental trauma) og býður félagsmönnum að taka þátt gegn vægu gjaldi en námskeiðið er opið öðrum einnig. Farið verður yfir lykiláherslur í fjöláfalla-og tengslamiðuðum stuðningi.
Námskeiðið er haldið af Sigríði Hlíf Valdimarssdóttur sviðssjóra í Klettabæ en hún starfaði um árabil í Danmörku og er m.a. með framhaldsmenntu í uppeldissálfræði með sérstaka áherslu á fjöláfalla og tengsla vanda barna og ungmenna.

Boðið verður upp á veitingar og þau sem skrá sig fyrir 15. janúar fara í pott og eiga þess kost að vinna 15 þúsund króna gjafabréf í Brauð & co. eða gjafabréf á Pítuna.
Nánar um námskeiðið og markmið þess:
- Skilja hegðun barnsins/ungmennisins í samhengi við aðstæður, ,,áfalla”sögu," aldur og þroska
- Finna og draga eins og hægt er úr streituvöldum í umhverfi/aðstæðum
- Geta veitt barninu/ungmenninu viðeigandi stuðning þegar það hefur ,,misst stjórn"
- Þekkja, nota og innleiða fjölbreyttar aðferðir til streitustjórnunar (self-regulation)
- Geta veitt lykilaðilum viðeigandi stuðning þannig að þeir styrkist í hlutverki sínu
- Þekkja og vinna með sína eigin styrkleika/hamlandi þætti í streituvekjandi aðstæðum
Við þetta aukast líkur á að barnið/ungmennið nái að þroskast og eiga það líf sem því var ætlað og að lykilaðilar verði nógu öruggir í hlutverki sínu.
Að auðvelda aðstandendum að skyggnast á bak við ,,hér og nú" hegðun barnsins/ungmennis með „tengslagleraugum" til þess að:
- …Ná sem oftast að skilja hegðunina í tengslamiðuðu samhengi
- Það eykur mjög líkur á að þörfum viðkomandi sé mætt á þroskavænlegan máta
- …Geta sem oftast veitt barninu/ungmenninu öryggi, traust, festu og ramma
- Það eykur mjög líkur á að barnið/ungmennið nái að standa sig nógu vel (good enough)
- …Geta sem oftast sýnt barninu/ungmenninu vinsemd, rósemd og yfirvegun þegar barnið er óstöðugt
- það eykur mjög líkur á að barnið/ungmennið læri að ráða betur við tilfinningar sínar og hegðun


Fylgdu okkur á Instagram