Fréttir

Skemmtinefnd - Útilega í Varmalandi 18.-20. júlí

Hin árlega útilega ÍÆ verður haldin helgina 18.-20. júlí í Varmalandi í Borgarfirði http://www.tjalda.is/varmaland/) .

Þar erum við með bókað húsið sem er með góðan samkomusal, íþróttasal og eldhús. Við erum með afmarkað tjaldsvæði og einnig er möguleiki á innigistingu í húsinu.

Sundlaugin á staðnum verður opin (http://sundlaug.is/vesturland-sundlaugar/57-varmaland).

Dagskráin verður nánar auglýst síðar, en á laugardeginum verður aðal skemmtidagskráin og sameiginlegur kvöldmatur. Á sunnudeginum ætlum við svo að hittast í samkomusalnum klukkan 10 þar sem allir koma með eitthvað á sameiginlegt brunchborð svo við getum átt góða stund saman áður en haldið er heim. Einnig er hægt að koma á laugardeginum og vera bara yfir daginn og fara að dagskrá lokinni.

 Cocktail veisluþjónusta sér um matinn á laugardagskvöldið og mun mæta á svæðið og grilla fyrir okkur. Matseðillinn er svona:

Jurtakryddaður lambsbógur
BBQ kjúklingabringur
Köld piparsósa
Köld BBQ-gráðostasósa
Steiktar kartöflur með kryddjurtum
Gamaldags danskt kartöflusalat með sinnepssósu
Gular baunir
Ferskt salat með sumarávöxtum og fetaosti
Agúrkusalat með ediki og dilli 

Verð fyrir kvöldmatinn: 4.400 kr. á mann fyrir 12 ára og eldri, 1.200 kr. fyrir börn 6-11 ára og 600 kr. fyrir börn 3-5 ára. Frítt fyrir börn yngri en 3 ára.

Allir þurfa að koma með eigin drykkjarföng (en það er að sjálfsögðu vatn á staðnum).

Þátttökugjald: 1.000 kr. á fullorðinn félagsmann ÍÆ, 2.750 kr. á fullorðinn utanfélagsmann og frítt fyrir börnin (innifalin öll aðstaðan, skemmtiatriði, pylsugrill og smá glaðningur fyrir börnin).

Gisting: Hver og einn greiðir fyrir gistinguna á staðnum, athugið að Varmaland er aðili að Útilegukortinu.

Verð á gistingu er 1.200 kr. nóttin á mann á tjaldstæði, frítt fyrir 16 ára og yngri (rafmagn 900 kr).

Verð fyrir innigistingu (10 herbergi eru í boði) er 6000 kr. nóttin fyrir herbergið (tvö einbreið rúm, hægt er að fá auka dýnur), ath að það eru ekki sængur í herbergjunum.

Skrifstofa ÍÆ sér um skráningu og innheimtu (nema vegna gistingar, hana þarf að greiða á staðnum). Best er að senda tölvupóst á isadopt@isadopt.is til að skrá sig. Þar þarf að koma fram nafn, kennitala og sími greiðanda, fjöldi fullorðinna, fjöldi barna, aldur barna, hvort taka eigi þátt í sameiginlegum mat og hvort gista eigi og þá hvernig.

Skráningu lýkur 14. júlí.

Hlökkum til að sjá sem flesta

Skemmtinefndin


Svæði