Fréttir

Skólaganga

Nú er stór hópur ættleiddra barna að hefja skólagöngu og er rétt að minna foreldra á bæklinginn sem kallast Kjörbarnið og skólinn sem fæst á skrifstofu ÍÆ. Bæklingurinn fjallar um ýmsar spurningar sem koma upp við upphaf skólagöngu og er jafn fróðlegur fyrir kennara og foreldra. Hann kostar kr 1.000 og fæst á skrifstofu ÍÆ eða sendur í pósti.

Einnig eru tvær greinar um Skólabyrjun og um Ættleidda barnið í bekknum í nýja afmælisritinu en þessar greinar hafa verið settar inn á svæði PAS nefndarinnar á vefsíðunni.  Við hvetjum foreldra til að benda kennurum á þessar greinar eða prenta þær út fyrir þá.


Svæði