Fréttir

Stundin - Jóhanna spyr um ættleiðingar - UNICEF varar við þeim

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi (UNICEF) hefur birt yfirlýsingu á heimasíðu sinni vegna umræðu um ættleiðingu barna frá Sýrlandi. Samtökin minna á mikilvægi þess að sameina fjölskyldur, en Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, lagði í vikunni fram fyrirspurn til Ólafar Nordal innanríkisráðherra um hvort ráðherrann hafi kannað möguleika á því að Íslendingar ættleiði munaðarlaus börn úr flóttabúðum. Þá nefndi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í stefnuræðu sinniá Alþingi í byrjun september að mögulega væri hægt að einfalda ættleiðingu barna frá Sýrlandi og öðrum stríðshrjáðum löndum. 

„Skiljanlegt er að fólk hugsi til þess möguleika að ættleiða börn frá Sýrlandi en það er hvorki skynsamlegasti kosturinn né sá sem mest þörf er á,“ segir aftur á móti í yfirlýsingu UNICEF. „Þau börn frá Sýrlandi sem talað er um sem munaðarlaus eiga langflest fjölskyldu. Þau eiga föðursystur, móðurbræður, ömmur, afa, systkynabörn, ömmusystur, afabræður og aðra ættingja. Mörg eiga auk þess foreldra á lífi en hafa orðið viðskila við þá. Verkefnið er og verður að ná að sameina þessi börn fjölskyldu sinni og gera þeim kleift að vera saman.“ Þá minna samtökin á að ríki Mið-Austurlanda leyfa almennt ekki ættleiðingar á milli landa. 

Yfirlýsing UNICEF í heild:

„Í ljósi þess að umræða um mögulegar ættleiðingar barna frá Sýrlandi hefur aftur farið af stað vill UNICEF á Íslandi minna á mikilvægi þess að sameina fjölskyldur, nú sem endranær. Skiljanlegt er að fólk hugsi til þess möguleika að ættleiða börn frá Sýrlandi en það er hvorki skynsamlegasti kosturinn né sá sem mest þörf er á. Þau börn frá Sýrlandi sem talað er um sem munaðarlaus eiga langflest fjölskyldu. Þau eiga föðursystur, móðurbræður, ömmur, afa, systkynabörn, ömmusystur, afabræður og aðra ættingja. Mörg eiga auk þess foreldra á lífi en hafa orðið viðskila við þá. Verkefnið er og verður að ná að sameina þessi börn fjölskyldu sinni og gera þeim kleift að vera saman. Að þessu vinna UNICEF og aðrar hjálparstofnanir hörðum höndum.

Flest hjálparsamtök sem vinna í þessum geira, þar á meðal UNICEF, leggja áherslu á að ættleiðingar milli landa séu ávallt síðasta lausnin, þegar sameining við fjölskyldu er þaulreynd. Þetta á sérstaklega við þegar neyðarástand ríkir eins og í Sýrlandi þar sem óeðlilegur þrýstingur getur myndast á fjölskyldur að láta frá sér börn og öryggisástand er það ótryggt að erfitt er að sannreyna hvort börn eigi aðstandendur á lífi eða ekki.

Vert er að geta þess að ríki Mið-Austurlanda leyfa almennt ekki ættleiðingar á milli landa þar sem formlegar ættleiðingar eru ekki það sem tíðkast á svæðinu heldur ótímabundið fóstur. Af þeim löndum sem tengjast inn í átökin í Sýrlandi hefur einungis Tyrkland fullgilt Haag-sáttmálann um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingu á milli landa. Bæði íslensk stjórnvöld og flestar alþjóðlegar stofnanir sem starfa í þágu barna krefjast þess að allar ættleiðingar byggist á grundvallarreglum Haag-sáttmálans ásamt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.“


Svæði