Sumargrill í Gufunesbæ 21. júní 2026 kl. 14
Árlegt sumargrill Íslenskrar ættleiðingar verður haldið í Frístundagarðinum Gufunesbæ sunnudaginn 21. júní milli klukkan 14 og 16. Boðið verður upp á grillaðar pylsur, drykki og að sjálfsögðu candyfloss beint frá Tékklandi. Veitingar fær félagið góðfúslega frá Hagkaup.
Vinsamlegast skráið ykkur HÉR svo við getum áætlað magn veitinga en viðburðurinn er frír fyrir alla félagsmenn.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Stjórn og starfsfólk ÍÆ


Fylgdu okkur á Instagram