Tæknisumarbúðir í Kína 2026
Sendiráð Kína vill aftur bjóða upp á tækifæri fyrir ungt fólk af kínverskum uppruna til að taka þátt í tæknisumarbúðum í Kína í sumar en tvö ungmenni fóru til Kína frá Íslandi í fyrra. Allt að 5 verða styrktir til fararinnar að þessu sinni.
Umsóknarfrestur er 3. apríl næstkomandi (föstudagurinn langi) og eru áhugasamir beðnir að senda póst á skrifstofu Íslenskrar ættleiðingar - isadopt@isadopt.is - til að fá frekari upplýsingar og umsóknareyðublað. Ferðalagið er niðurgreitt upp að ca. 230 þúsund krónum og er fæði og húsnæði innifalið. Sendiráðið hefur óskað eftir milligöngu ÍÆ.
Þar sem skrifstofa ÍÆ verður lokuð fimmtudag og föstudag (2. og 3. apríl) í næstu viku eru áhugasamir beðnir að hafa samband fyrir þann tíma en hægt er að hringja í skrifstofusímann náist það ekki.

Fylgdu okkur á Instagram