Uppkomnir ættleiddir frá Kalkútta fara í útilegu
20.05.2025
Í lok síðasta árs var stofnaður lokaður Facebook hópur fyrir uppkomna ættleidda frá Kalkútta á Indlandi og er hann ætlaður öllum þeim ,,börnum" sem ættleidd hafa verið frá Indlandi en 164 börn voru ættleidd frá Indlandi á sínum tíma. Mikill áhugi er hjá þessum hópi að leita uppruna síns og halda hópinn. Tveir hittingar hafa þegar verið haldnir á þessu ári og hefur hópurinn ákveðið að stefna á fjölskylduútilegu á suðurlandi dagana 8. - 10. ágúst næstkomandi, en hún verður í anda hinnar klassísku ÍÆ útilegu sem var á hverju ári um árabil. Stefnt er að gera þetta
að árlegum viðburði og rúlla á milli landshluta ár hvert.

Í fyrstu verður mökum og börnum meðlima hópsins einnig boðið en í framtíðinni gæti verið að fleirum verði boðið að taka þátt.
Alls eru 59 sem hafa skráð sig í hópinn en áhugasömum sem hafa verið ættleiddir frá Kalkútta geta beðið um að fá að vera hluti af hópnum: (3) Börn sem eru ættleidd frá Kalkútta Indlandi� | Facebook