Fréttir

Útileguhelgin góða

Húsabakki í Svarfaðardal
Húsabakki í Svarfaðardal

Vel horfir með útilegu Í.Æ. um helgina að Húsabakka í Svarfaðardal. Útilegan verður fjölmenn að vanda en á annað hundrað manns hafa nú þegar skráð sig til þátttöku. Veðurhorfur eru ágætar og tilhlökkun mikil.

Vert er að benda á að þótt óskað hafi verið eftir að fólk skrái sig fyrir fram eru allir velkomnir þó þeir hafi ekki boðað komu sína með pósti til skrifstofunnar.

Hér eru nánari upplýsingar um útileguna.


Svæði