Fréttir

Visir.is - Hefur misst báða foreldra sína, sigrast á krabbameini og leitar nú að upprunanum

Ása Nishanthi fór út til Sri Lanka ásamt Sigrúnu
Ása Nishanthi fór út til Sri Lanka ásamt Sigrúnu

Stefán Árni Pálsson skrifar  30. október 2017 14:15

Ása Nishanthi Magnúsdóttir var ættleidd frá Sri Lanka til Íslands árið 1985 af breskri móður og íslenskum föður. Á skírnardegi sonar hennar, fyrir sex árum, gaf faðir hennar henni ættleiðingarskjölin og allar götur síðan hefur Ásu langað að vita meira um uppruna sinn og fólkið sitt í Sri Lanka.


Fjallað var um Ásu í þriðja þættinum af Leitinni að upprunanum á Stöð 2 í gærkvöldi.  Saga Ásu er nokkuð mögnuð og hefur hún gengið í gegnum margt.  Jacqueline Mary Friðriksdóttir, móðir Ásu, lést úr lungnakrabbameini árið 2013. 

Sex mánuðum eftir að móðir hennar deyr greindist Ása með eitlakrabbamein og við tók erfið níu mánaða lyfjameðferð. Örskömmu eftir að Ása fékk þau gleðitíðindi að hún væri laus við krabbameinið var pabbi hennar greindur með sama sjúkdóm og á því stigi að hann var ólæknandi.

„Það eina sem hægt var að gera fyrir hann var að halda krabbameininu niðri,“ sagði Ása Nishanthi í þættinum í gær. Magnús Fjalldal lést sex mánuðum eftir greiningu eða í lok árs 2015.

Ása fæddist í Sri Lanka og var sótt í höfuðborg landsins Kólombó en hún flaug út með Sigrúnu Ósk fyrr í þessum mánuði í von um að finna blóðmóður sína.

Fyrir rúmum mánuði komst Sri Lanka í heimsfréttirnar og fjölluðu BBC, The Guardian og allir helstu miðlar heims um að maðkur hefði verið í mysunni þegar kom að því hvernig staðið var að ættleiðingum frá landinu á níunda áratugnum. Þá hafi óheiðarlegir milliliðir hagnast og skjöl fölsuð í tengslum við ættleiðingarferlið. Ása hefur alla tíð átt mynd af sér og móður sinni en fór að efast um það hvort konan væri í raun móðir hennar þegar fréttirnar fóru í loftið.

Í þættinum í gær kom í ljós að leitin á eftir að reynast þrautin þyngri og eru fáar vísbendingar til staðar sem gætu leitt til þess að Ása fái að hitta konuna sem fæddi hana inn í þennan heim.

Hér að neðan má sjá brot úr þættinum í gær.

 

Visir.is - Hefur misst báða foreldra sína, sigrast á krabbameini og leitar nú að upprunanum


Svæði