Fundargerð 14. apríl 2025
Mætt voru: Elísabet Hrund Salvarsdóttir, Helga Pálmadóttir, Jón Guðmundur Björgvinsson og Sigríður Dhammika Haraldsdóttir sátu fundinn. Kristín Ósk Wium Hjartardóttir og Selma Hafsteinsdóttir boðuðu forföll.
Ásta Sól Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri tók einnig þátt í fundinum.
-
Fundargerð fundar 11. mars - samþykkt.
-
Fundargerð aðalfundar 2025 - samþykkt.
-
Skýrsla skrifstofu fyrir mars. Framkvæmdastjóri lagði fram skýrsluna og var hún rædd. Nokkur aukning á upplýsingagjöf og fundum í gegnum síma. Löggilding vegna Tékklands og Kólumbíu var endurnýjuð og gildir nú í 3 ár frá 18. mars. Senda þarf upprunalöndunum skjalið.
-
Frásagnir frá NAC og EurAdopt fundum.
Elísabet og Sigríður fóru á NAC fund í Kaupmannahöfn. Stjórninni verða sendar landsskýrslur.
Helga fór sem fulltrúi ÍÆ til Lúxemborgar á fund EurAdopt. Ráðstefna verður á Möltu á næsta ári og var það rætt.
-
Umræður um næstu aðgerðir varðandi framtíð ÍÆ (styrktarmál, fundur með ráðherra og fleira). Skjali verður deilt með stjórnarmönnum varðandi lista yfir staði sem hægt er að sækja um til og verkskiptingu. Funda þarf með ráðherra og alþingismönnum á næstu misserum.
-
UMPOD fundur 2. júní. Ásta Sól framkvæmdastjóri fundar með UMPOD í Brno í Tékklandi mánudaginn 2. júní næstkomandi. Farið verður yfir umhverfið á Íslandi, breytingar, farsældina og ræða umsækjendur á biðlista.
-
Viðburðir fram undan. Biðlistahittingur 5. maí fyrir fólk á biðlista í Tógó og í Tékklandi. Haft verður samband við alla. 20. maí verður fyrirlestur um DNA upprunaleit og sumargrill verður 14.júní. Sumarlokun verður 9. júlí - 6. ágúst.
-
Eldhúsið. Innréttingin verður keypt af eiganda á næstunni og ÍÆ greiðir fyrir borðplötu og vask. Sótt verður um styrk frá IKEA. Stjórn tekur að sér að aðstoða við það sem þarf varðandi þetta.
-
Embætti innan stjórnar. Helga Pálmadóttir bauð sig fram til formanns og var það samþykkt einróma. Hún verður einnig fulltrúi ÍÆ í EurAdopt. Sigríður D. Haraldsdóttir verður áfram varaformaður og fulltrúi stjórnar í NAC ÍÆ, Selma Hafsteinsdóttir ritari. Meðstjórnendur eru Kristín Ósk Wiium Hafsteinsdóttir, Jón Guðmundur Björgvinsson og Elísabet Hrund Salvarsdóttir, sem kemur aftur inn í stjórn.
Fleira var ekki rætt og fundi var slitið klukkan 19.07
Næstu fundir: 14. maí og 10. júní