Fundargerð 14. maí 2025
Stjórnarfundur Íslenskrar ættleiðingar, miðvikudaginn 14. maí kl. 17:00
Mætt: Helga Pálmadóttir, Elísabet Hrund Salvarsdóttir, Jón Björgvinsson og Sigríður Dhammika Haraldsdóttir. Selma Hafsteinsdóttir tók þátt í gegnum fjarfundabúnað hluta af fundinum.
Þá tók Ásta Sól Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri þátt í fundinum.
Dagskrá stjórnarfundar
-
Fundargerð síðasta stjórnarfundar
-
Skýrsla skrifstofu fyrir apríl
-
Minnisblað til ráðherra
-
Næstu skref í styrktarmálum
-
NAC og framkvæmdastjórnarfundur
-
UMPOD undirbúningurfundur
-
Verkefni næstu mánaða
-
Önnur mál
1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar
Fundargerð samþykkt.
2. Skýrsla skrifstofu
Framkvæmdastjóri fer yfir skýrslu skrifstofu.
Rætt um form fundargerðar, framkvæmdastjóri sendir gögn á stjórn.
3. Minnisblað til ráðherra
Stjórn mun yfirfara minnisblað sem framkvæmdastjóri leggur fyrir á fundi og senda athugasemdir.
4. Næstu skref í styrktarmálum
Farið yfir stöðuna í styrktarmálum, uppfæra skjalið verkefni 2025.
5. NAC og framkvæmdastjórnarfundur
Rætt um hvernig væri hægt að auka samvinnu milli framkvæmdastjóra ættleiðingarfélaga á Norðurlöndunum.
6. UMPOD undirbúningsfundur
Farið yfir væntanlega ferð framkvæmdastjóra til Tékklands í byrjun júní þar sem hún fer á fund með UMPOD ættleiðingaryfirvöldum þar.
7. Viðburðir framundan (DNA fyrirlestur, grill, Reykjavíkurmaraþon)
Rætt um næstu viðburði hjá félaginu.
Athuga með veitingar fyrir sumargrillið 14. júní.
Athuga með boli fyrir Reykjavíkurmaraþon.
8. Önnur mál
a. Breytingar á stjórn
Rætt, einn stjórnarmaður hefur sagt sig úr stjórn félagsins og er því stjórn nú mönnuð 5 manns.
b. Félag fósturforeldra
Formaður ÍÆ átti samtal við formann félags fósturforeldra og ákveðið var að hittast á fundi og fara yfir mögulega samvinnu.
c. Indlandshópur – uppkomnir ættleiddir
Framkvæmdastjóri upplýsir um útilegu sem þau ætla að hafa fyrir hópinn í ágúst, óskuðu eftir styrk frá Íslenskri ættleiðingu.
Athuga með styrk vegna útileikfanga.
d. Heimasíða Íslenskrar ættleiðingar
Fundur með aðila frá Stefnu sem sér um vefumsjónarkerfi þriðjudaginn í næstu viku.
e. Nýr prentari
Ofar mun gefa félaginu prentara.
f. Eldhúsinnrétting á skrifstofu
Innrétting er komin nema sökkull sem þarf að sækja. Þarf að losna við eldri innréttingu og setja nýja upp. Stjórn mun aðstoða framkvæmdastjóra við uppsetningu.
Fundi slitið kl. 19:05
Næsti stjórnarfundur verður þriðjudaginn 10. júní kl. 17:00.