Fréttir

Okkar dagur á Akureyri

Frábær dagur framundan.
Frábær dagur framundan.

Íslensk ættleiðing stendur fyrir degi fræðslu, umræðna og ráðgjafar laugardaginn 21. maí n.k. á Akureyri.  Þar munu reynslumikið og kunnáttufólk mæta og halda fyrirlestra, varaformaður Íslenskra ættleiðingar og framkvæmdarstjóri þess kynna félagið og svara spurningum og sálfræðingur félagsins verður með viðtöl.  Dagskráin verður sem hér segir:

Kl. 10:00.
Skólaaðlögun ættleiddra barna og sérstaða þeirra á fyrstu árum skólagöngunnar.
Ingibjörg Margrét Magnúsdóttir grunnskólakennari, MA í sérkennslu og móðir tveggja ættleiddra barna heldur fyrirlesturinn "Skólaaðlögun ættleiddra barna og sérstaða þeirra umfram önnur börn á fyrstu árum skólagöngunnar" Umfjöllunin byggir á rannsókn hennar á skólaaðlögun ættleiddra barna. Varpað er ljósi á sameiginlega þætti margra ættleiddra barna er varða skólagöngu þeirra og hvað hægt er að gera til að auka vellíðan þeirra í skólanum.

Kl. 11:00. 
Hvernig gengur?
Í fyrirlestri sínum "Hvernig hefur gengið?" mun Dr.Jórunn Elídóttir dósent í kennaradeild hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri og móðir ættleidds barns, fjalla um þessa spurningu, sem margir foreldrar fá þegar heim er komið með ættleidd börn sín.  Algengt svar foreldra er  „það gengur allt vel“.  Skoðað verður m.a. hvað felst í þessu svari og afleiðingar þess.  Þá verður farið í ákveðna þætti sem foreldrar þurfa að vera vakandi fyrir í uppeldi barna sinna.  

Kl. 12:00 - 13:00.
Félagið okkar og framtíðin.
Elísabet Hrund Salvarsdóttir varaformaður ÍÆ og Kristinn Ingvarsson framkvæmdarstjóri ÍÆ kynna félagið, stöðu þess og framtíðarsýn.  Boðið verður upp á léttar veitingar. 

Skráning á fræðslu
 

Skráning að hlusta á fræðslu á netinu
 

Kl. 10:00.
Viðtöl.
Lárus H. Blöndal, sálfræðingur ÍÆ verður til viðtals frá kl. 10:00.  Boðið verður bæði upp á fyrstu viðtöl og almenn ráðgjafaviðtöl.

Fyrirlestrarnir og ráðgjöfin verða í Brekkuskóla, Laugargötu. Skráning er á heimasíðu ÍÆ. Þeim sem eiga ekki heimangengt er boðið upp á fyrirlestrana á netinu. Gjaldfrítt er fyrir félagsmenn en kostar kr.1000 fyrir aðra.  

Skráning í ráðgjöf hjá Lárusi H. Blöndal 

Skráning í fyrsta viðtal 

 

 


Svæði