Fréttir

Fyrirlestur Nadyu Molina

Fyrirlestur Nadyu Molina
Við erum komin heim! Og hvað svo?
Lesa meira

Stjórnarfundur 02.11.2010

1. Nýr starfsmaður 2. Skýrsla framkvæmdastjóra 3. Fæðingarorlofssjóður og regluverkið 4. Vinnufundur 5. Verkefnalisti 6. Önnur mál, erindisbréf til formanna nefnda, landvinningamál.
Lesa meira

VÍSIR - Skuldir hindra ættleiðingu

VÍSIR - Skuldir hindra ættleiðingu
Stökkbreyttar skuldir geta komið í veg fyrir að fólk geti ættleitt barn. Ólögleg gengistryggð lán koma þar við sögu. Íslensk ættleiðing gagnrýnir hvernig staðið er að leyfisveitingu og vill skýrari reglur um fjárhag. Stökkbreytt skuldastaða hjóna á biðlista eftir ættleiðingu veldur því að afgreiðsla umsókna þyngist að mun. Í mörgum tilfellum eru það gengistryggð lán, sem dæmd hafa verið ólögleg, sem valda fólki erfiðleikum. Heimildir Fréttablaðsins herma að fólk eigi jafnvel á hættu að falla af biðlista vegna þessa. Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar, segir að forsamþykki til ættleiðinga sé í gildi í ákveðinn tíma og þá þurfi að fá það endurnýjað. „En hafi fjárhagsleg staða viðkomandi breyst frá þeim tíma sem forsamþykki til ættleiðingar fékkst í upphafi og til þess tíma sem endurskoðun fer fram getur það valdið því að fólk missir rétt sinn. Þetta er því miður svona, það er rétt."
Lesa meira

Svæði