Fréttir

VERUM VIÐ

“Verum við“ er hópastarf fyrir ættleidd börn fædd 2002 til 2004 haldið á vegum Íslenskrar ættleiðingar.  Hópurinn mun halda til í Félagsmiðstöðinni Bústöðum og hittist í fyrsta skipti   kl. 11:00 laugardaginn 31. janúar n.k.  Gert er ráð fyrir að hittast vikulega í átta skipti, tvær klukkustundir í senn. Í fyrsta tímann koma foreldrar með börnin sín þar sem leiðbeinendur kynna sig og hópastarfið.  Lögð verður áhersla á góða samvinnu við foreldra.

Kynningarbréf til foreldra


Svæði