Fréttir

Stjórnarfundur 19.02.2009

Fundur í stjórn Íslenskrar ættleiðingar 19. febrúar 2009, kl. 20:00
12. fundur stjórnar eftir aðalfund í mars 2008
 
Mættir: Ingibjörg J., Ingibjörg B., Kristjana, Helgi, Finnur, Freyja, og Arnþrúður, Guðrún framkvæmdastjóri sat fundinn.
 
Fundurinn hófst á því að fundarmenn fóru yfir síðstu fundargerð og samþykktiu hana.
 
Nepal
Ingibjörg B. lagði fyrir fundinn greinargerð vegna fundar sem hún átti í Danmörku í janúar með mögulegan samstarfsaðila í Nepal. Ákveðið að halda áfram vinnu við umsóknarferlið vegna ættleiðinga frá Nepal.
 
Aðalfundur
Rætt um undirbúning og skipulag aðalfundar sem verður 26. mars næstkomandi. Fundurinn verður í salnum Skarfurinn í Skarfabakka. Fyrirlestur verður að loknum aðalfundarstörfum og er unnið í því að fá spennandi fyrirlesara. Sett verður auglýsing á vefsíðuna um aðalfundinn og óskað eftir framboðum til stjórnar. Einnig verður fundarboð sent til félagsmanna a.m.k. 3 vikum fyrir aðalfundinn.
 
Aldursviðmið
Ákveðið að fulltrúar stjórnar ÍÆ fari á fund með dómsmálaráðherra til að ræða stöðuna sem upp er komin vegna endurnýjunar forsamþykkis fyrir umsækjendur á biðlista sem eru komnir yfir aldursviðmið.
 
Ættleiðingargjöld
Ákveðið að öll gjöld hjá félaginu verði vísitölutryggð utan félagsgjaldið sem er ákveðið á aðalfundi. Ákveðið að hækkanir komi til framkvæmda 1. mars 2009. Tilkynna þarf breytingar á gjaldtöku til dómsmálaráðuneytis. Ákveðið að stjórn leggi til að árgjald félagsins hækki í 7000 kr. á næsta aðalfundi.
 
Önnur mál
  1. Ingibjörg J. og Guðrún gerðu grein fyrir fundi sem þær áttu með nýjum sendiherra Indlands á Íslandi. Hann var mjög jákvæður gagnvart félaginu og vill vera í góðum tengslum við það.
  2. Dagskrá og fjárhagsáætlun frá PAS nefnd lögð fyrir fundinn. Rætt um hvað félagið hefur lítið svigrúm til að leggja fé til PAS nefndar og tekin ákvörðun um breytingar á dagskrá í samræmi við það. 
 
Næsti fundur ákveðinn 19. mars.
Fleira ekki rætt og fundi slitið.
 
Arnþrúður Karlsdóttir
Fundarritari

Svæði