Fréttir

Fundur fyrir umsækjendur í ættleiðingarferlinu

Íslensk ættleiðing býður þeim umsækjendum í forsamþykkisferli eða með umsókn í upprunalandi í samtal og kaffi á nýrri skrifstofu Íslenskrar ættleiðingar í Skipholti 50b, þriðjudagskvöldið 10.október 2023, kl. 20:00.

Tilgangurinn með þessum fundi er að fara yfir þær breytingar sem orðið hafa á starfsemi Íslenskrar ættleiðingar á þessu ári, en einnig fáum við erindi frá Steini Stefánssyni sem ættleiddi son sinn frá Tékklandi árið 2016.

Með þessu er vonast til að hópurinn sem er á mismunandi stað í ættleiðingarferlinu eigi möguleika til að skapa tækifæri til að hittast, spjalla saman, læra hvert af öðru, styðja hvert annað og hafa gaman saman. 

Hlökkum til að sjá sem flesta og þið megið gjarnan staðfesta komu ykkar eða hvort þið viljið taka þátt í gegnum fjarfundarbúnað með tölvupósti á netfangið isadopt@isadopt.is, ef þið sjáið fram á að komast. 


Svæði