Fréttir

Aðalfundur 15. september, kl. 20:00

Auka aðalfundur verður haldinn n.k. fimmtudag. Fyrir fundinum liggur að kjósa tvo fulltrúa í stjórn þar sem ekki voru nógu margir í framboði á síðasta aðalfundi.

Að þessu sinni eru tveir í framboði, þeir Ari Þór Guðmannsson og Sigurður Halldór Jesson og verða þeir sjálfkjörnir í stjórn.

Ari Þór Guðmannsson

Hann hefur starfað sem:
Eigandi Tölvukjarninn ehf 2004 - 2006
Deildarstjóri Tölvudeildar hjá Keflavíkurflugvall ohf 2006 - 2010
Hópstjóri netdeildar hjá Landspítalanum 2010 - 2011
Tæknilegur leiðtogi innviða hjá Sensa ehf 2011 -

2011 byrjaði hann og  Rebekka Laufey eiginkona hans ættleiðingarferlið.
Árið 2013 ættleiddu þau Jósef Inga frá Tékklandi. Hann hefur mikinn áhuga á ættleiðinarmálum og hefur lagt sig fram að kynna sér málefni þeim tengdum, einnig hefur hann verðir virkur að sækja viðburði ÍÆ. Hann hefur aðstoðað við tæknileg mál hjá ÍÆ og laggt sitt að mörkum að reyna að efla félagið t.d með því að koma upp fjarfundarbúnaði svo að landsbyggðin og aðrir sem ekki geta mætt hafi möguleika á að sjá fyrirlestra ÍÆ. Einnig eru þau hjónin á biðlista í Tékklandi eftir örðu barni. 

Ara langar að leggja sitt að mörkun til að reyna að efla félagið enn frekar, mun hann reyna að nýta sína þekkingu á tæknimálum til að efla samskipti betur milli ÍÆ og félagsmanna. Einnig að aðstoða við samskipti við núverandi upprunalönd jafnt sem ný. Einnig mun hann reyna að efla þátttöku strákana enn frekar í félaginu. 

Áhugamál er fyrst og fremst fjölskyldan en svo er það veiði, matargerð, útivera og ferðalög.

 

Sigurður Halldór Jesson

Ég er grunnskólakennari og hef starfað við kennslu í 23 ár. Hef kennt mest á unglingastigi og þá helst náttúrufræði og upplýsingatækni. Hef alltaf haft gaman af því að umgangast unglinga með sínar bólur, drama og í leit að sjálfum sér. Konan mín er sammála mér í því enda kynntumst við í Kennó á sínum tíma. Hún kennir nú í framhaldsskólanum á Selfossi þar sem við búum.

Ég hef komið að ýmsum félagsstörfum og er núna formaður Kennarafélags Suðurlands og í stjórn Félags grunnskólakennara.  Hef látið að mér kveða í nefndum og stjórnum á vegum félagsins og hef þannig öðlast fjölbreytta reynslu af ýmsum málum tengd félagsstörfum. 

Ég og konan mín fórum til Kína sumarið 2010 og sóttum son okkar Kára Zhan sem var þá tæplega tveggja ára gamall. Fórum til suður Kína í flóð, hita og mikinn raka. Það var mikil ævintýraferð enda prinsinn okkar sem við vorum að sækja. Árið eftir, fyrir jólin 2011, fórum við að sækja  yngri prinsinn okkar upp í fjöllin við Mongólíu og var það einnig mikið ævintýri. Við erum því svo lánsöm að eiga tvo stráka sem eru nú báðir komnir í skóla, Þór Wu í fyrsta bekk og Kári Zhan í þriðja bekk. Lífið er ljúft og við njótum þess að takast á við hvert verkefni sem okkur er fært með gleði og jákvæðni að vopni. 

Ég og konan mín höfum oft talað um að leggja meira af mörkum fyrir ÍÆ sem er okkar félag og er okkur eðlilega afar hjartfólgið. Þannig að með framboði mínu er gott að vita að ég á góðan bakhjarl heima sem er með mér í þessu öllu saman.

Að mínu mati er mikilvægt að halda áfram því góða starfi sem ÍÆ hefur unnið að síðustu árin. Fylgja málum eftir og ekki leyfa ráðamönnum þjóðarinnar að gleyma þessum málaflokki. Mikilvægt að styrkja stöðu ÍÆ, bæði fjárhagslega og í umræðunni í samfélaginu.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn og taka þátt í störfum félagins.
Fundurinn hefst klukkan 20:00 á Hótel Hilton, sal E.


Svæði