Fréttir

Aðalfundur 2016

Stjórn Íslenskrar ættleiðingar, boðar til aðalfundar sem haldinn verður á Hótel Hilton, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, 2.hæð salur F, fimmtudaginn 10. mars 2016, kl. 20:00.

Samkvæmt samþykktum félagsins er dagskrá fundarins sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar.
3. Kjör stjórnar.
4. Ákvörðun árgjalds.
5. Lagabreytingar.
6. Önnur mál. 

Um lagabreytingar:
Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins skulu berast stjórn félagsins skriflega í síðasta lagi 31. janúar ár hvert og skulu þær tilgreindar í fundarboði. Engar tillögur um breytingar á samþykktum bárust. 

Um stjórnarkjör:
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum: Formanni, varaformanni og fimm meðstjórnendum. Kosning stjórnarmanna og varamanna ræðst af atkvæðamagni. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar. Kosning stjórnar fer fram á aðalfundi ár hvert eða aukaaðalfundi. Hluta stjórnarmanna skal kjósa árlega til tveggja ára í senn, þrjá annað árið og fjóra á því næsta. 

Vakin er athygli á að framboðsfrestur til stjórnarkjörs er samkvæmt samþykktum félagsins til klukkan 20:00 þann 25.febrúar og skal senda framboð til félagsins á netfangið isadopt@isadopt.is

Úr samþykktum Íslenskrar ættleiðingar

7. grein
Aðalfundur
Aðalfundur skal haldinn fyrir marslok ár hvert. Skal hann boðaður bréflega eða með öðrum sannanlegum hætti með minnst þriggja vikna fyrirvara. Til aukaaðalfundar skal boða með sama fyrirkomulagi og til aðalfundar samkvæmt 7. mgr.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt athugasemdum endurskoðanda félagsins skal lagður fram til samþykktar.
Kjör stjórnar.
Ákvörðun árgjalds.
Breytingar á samþykktum félagsins.
Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Breytingar á stjórn félagsins skal tilkynna innanríkisráðuneytinu áður en 14 dagar eru liðnir.
Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins skulu berast stjórn félagsins skriflega í síðasta lagi 31. janúar ár hvert og skulu þær tilgreindar í fundarboði.
Framboð til stjórnarkjörs skulu berast skriflega til skrifstofu félagsins í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund.


Svæði