Fréttir

Aðalfundur 2017

Stjórn Íslenskrar ættleiðingar, boðar til aðalfundar sem haldinn verður á Hótel Hilton, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, 2.hæð sal E, fimmtudaginn 9. mars 2017, kl. 20:00.

Samkvæmt samþykktum félagsins er dagskrá fundarins sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar.
3. Kjör stjórnar.
4. Ákvörðun árgjalds.
5. Breytingar á samþykktum félagsins.
6. Önnur mál.

Um breytingar á samþykktum félagsins:
Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins skulu berast stjórn félagsins skriflega í síðasta lagi 31. janúar ár hvert og skulu þær tilgreindar í fundarboði. Fjórar tillögur um breytingar á samþykktum bárust að þessu sinni. 

Breytingartillaga 1
2.grein
Tilgangur félagsins

er:
að vinna að alþjóðlegum ættleiðingum með því markmiði að hagsmunir barnsins séu ávallt hafðir í fyrirrúmi í anda Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og Haagsamningsins um alþjóðlegar ættleiðingar.

verður:
að vinna að alþjóðlegum ættleiðingum með því markmiði að hagsmunir barnsins séu ávallt hafðir í fyrirrúmi í anda Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og Haagsamningsins um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingar.

Breytingartillaga 2
2.grein
Tilgangur félagsins

er:
að stuðla að velferð barna í samræmi við Saming Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og Haagsamninginn um alþjóðlegar ættleiðingar.

verður:
að stuðla að velferð barna í samræmi við Saming Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og Haagsamninginn um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingar. 

Breytingartillaga 3
6. grein
Stjórn

er:
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum: Formanni, varaformanni og fimm meðstjórnendum. Kosning stjórnarmanna og varamanna ræðst af atkvæðamagni. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar. Kosning stjórnar fer fram á aðalfundi ár hvert eða aukaaðalfundi. Hluta stjórnarmanna skal kjósa árlega til tveggja ára í senn, þrjá annað árið og fjóra á því næsta. Hætti stjórnarmaður á kjörtímabili tekur varamaður sæti hans að öðrum kosti er félagsfundi heimilt að kjósa annan í hans stað.
Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
Í stjórninni skulu eiga sæti læknir og lögfræðingur, en verði því ekki við komið skal stjórn félagsins, í samráði við innanríkisráðuneytið, ráða trúnaðarlækni og/eða lögfræðing til ráðgjafar. Stjórnarmenn skulu hafa þekkingu á þeim málum er varða ættleiðingar á erlendum börnum. Stjórnin ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfélag.
Formaður boðar og stýrir stjórnarfundi.
Stjórnarfundur telst lögmætur ef hann sækir meirihluti stjórnar.
Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins milli félagsfunda.
Stjórnarmenn félagsins, starfsmenn og aðrir sem kunna að vinna í þágu félagsins, eru bundnir þagnarskyldu um hvaðeina er þeir fá vitneskju um varðandi einkahagi manna við störf sín fyrir félagið. Þagnarskylda helst þótt látið sé af störfum.
Stjórnarmeðlimir, starfsmenn og aðrir sem kunna að vinna í þágu félagsins mega ekki taka þátt í afgreiðslu ættleiðingarmáls ef þeir eða menn þeim nákomnir eru aðilar málsins.

verður:
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum: Formanni, varaformanni og fimm meðstjórnendum. Kosning stjórnarmanna ræðst af atkvæðamagni. (Tekið út „og varamanna“) Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar. Kosning stjórnar fer fram á aðalfundi ár hvert eða aukaaðalfundi. Hluta stjórnarmanna skal kjósa árlega til tveggja ára í senn, þrjá annað árið og fjóra á því næsta.  (Tekið út: Hætti stjórnarmaður á kjörtímabili tekur varamaður sæti hans að öðrum kosti er félagsfundi heimilt að kjósa annan í hans stað. ) Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
Í stjórninni skulu eiga sæti læknir og lögfræðingur, en verði því ekki við komið skal stjórn félagsins, í samráði við innanríkisráðuneytið, ráða trúnaðarlækni og/eða lögfræðing til ráðgjafar. Stjórnarmenn skulu hafa þekkingu á þeim málum er varða ættleiðingar á erlendum börnum. Stjórnin ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfélag.
Formaður boðar og stýrir stjórnarfundi.
Stjórnarfundur telst lögmætur ef hann sækir meirihluti stjórnar.
Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins milli félagsfunda.
Stjórnarmenn félagsins, starfsmenn og aðrir sem kunna að vinna í þágu félagsins, eru bundnir þagnarskyldu um hvaðeina er þeir fá vitneskju um varðandi einkahagi manna við störf sín fyrir félagið. Þagnarskylda helst þótt látið sé af störfum.
Stjórnarmeðlimir, starfsmenn og aðrir sem kunna að vinna í þágu félagsins mega ekki taka þátt í afgreiðslu ættleiðingarmáls ef þeir eða menn þeim nákomnir eru aðilar málsins. 

Breytingartillaga 4
9. grein
Þjónusta

er:
Einungis skuldlausir félagar geta notið þjónustu af hálfu félagsins. Umsækjendur skuldbinda sig til að hlýta reglum félagsins varðandi meðferð ættleiðingarumsókna.

verður:
Félagsmenn njóta forgangs að þjónustu félagsins. Umsækjendur skuldbinda sig til að hlýta reglum félagsins varðandi meðferð ættleiðingarumsókna. 

Um stjórnarkjör úr samþykktum félagins:
6.grein
Stjórn
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum: Formanni, varaformanni og fimm meðstjórnendum. Kosning stjórnarmanna og varamanna ræðst af atkvæðamagni. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar. Kosning stjórnar fer fram á aðalfundi ár hvert eða aukaaðalfundi. Hluta stjórnarmanna skal kjósa árlega til tveggja ára í senn, þrjá annað árið og fjóra á því næsta. 

Kosið verður um fjögur sæti stjórnarmanna að þessu sinni. Sitjandi stjórnarformaður Elísabet Hrund Salvarsdóttir gefur kost á sér til stjórnarsetu áfram.

Vakin er athygli á að framboðsfrestur til stjórnarkjörs er samkvæmt samþykktum félagsins til klukkan 20:00 þann 23. febrúar og skal senda framboð til félagsins á netfangið isadopt@isadopt.is

Um aðalfund úr samþykktum félagsins:

7.grein
Aðalfundur
Aðalfundur skal haldinn fyrir marslok ár hvert. Skal hann boðaður bréflega eða með öðrum sannanlegum hætti með minnst þriggja vikna fyrirvara. Til aukaaðalfundar skal boða með sama fyrirkomulagi og til aðalfundar samkvæmt 7. mgr.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt athugasemdum endurskoðanda félagsins skal lagður fram til samþykktar.
Kjör stjórnar.
Ákvörðun árgjalds.
Breytingar á samþykktum félagsins.
Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Breytingar á stjórn félagsins skal tilkynna innanríkisráðuneytinu áður en 14 dagar eru liðnir.
Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins skulu berast stjórn félagsins skriflega í síðasta lagi 31. janúar ár hvert og skulu þær tilgreindar í fundarboði.
Framboð til stjórnarkjörs skulu berast skriflega til skrifstofu félagsins í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund.

 


Svæði