Fréttir

Aðalfundur 2022

Stjórn Íslenskrar ættleiðingar, boðar til aðalfundar félagsins sem haldinn verður hjá Framvegis, miðstöð símenntunar, Borgartún 20, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 17. mars 2022, kl. 20:00.

Samkvæmt samþykktum félagsins er dagskrá fundarins sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt athugasemdum endurskoðanda félagsins skal lagður fram til samþykktar. 
3. Kjör stjórnar.
4. Ákvörðun árgjalds.
5. Breytingar á samþykktum félagsins. 
6. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.

Um stjórnarkjör:
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum: Formanni, varaformanni og fimm meðstjórnendum. Kosning stjórnarmanna ræðst af atkvæðamagni. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar. Kosning stjórnar fer fram á aðalfundi ár hvert eða aukaaðalfundi. Hluta stjórnarmanna skal kjósa árlega til tveggja ára í senn, þrjá annað árið og fjóra á því næsta. 

Um breytingar á samþykktum félagsins:
Skv. 7 gr. samþykktum félagsins skulu tillögur að breytingu á þeim berast skriflega eigi síðar en 31. janúar ár hvert. 

Ein breytingartillaga barst á samþykktum félagsins, nær tillagan til 6.greinar um Stjórn:

Í dag er 6.grein

Stjórn
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum: Formanni, varaformanni og fimm meðstjórnendum. Kosning stjórnarmanna ræðst af atkvæðamagni. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án leynilegrar kosningar. Kosning stjórnar fer fram á aðalfundi ár hvert eða aukaaðalfundi. Hluta stjórnarmanna skal kjósa árlega til tveggja ára í senn, þrjá annað árið og fjóra á því næsta. 
Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
Í stjórninni skulu eiga sæti læknir og lögfræðingur, en verði því ekki við komið skal stjórn félagsins, í samráði við innanríkisráðuneytið, ráða trúnaðarlækni og/eða lögfræðing til ráðgjafar. Stjórnarmenn skulu hafa þekkingu á þeim málum er varða ættleiðingar á erlendum börnum. Stjórnin ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfélag.
Formaður boðar og stýrir stjórnarfundi.
Stjórnarfundur telst lögmætur ef hann sækir meirihluti stjórnar.
Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins milli félagsfunda.
Stjórnarmenn félagsins, starfsmenn og aðrir sem kunna að vinna í þágu félagsins, eru bundnir þagnarskyldu um hvaðeina er þeir fá vitneskju um varðandi einkahagi manna við störf sín fyrir félagið. Þagnarskylda helst þótt látið sé af störfum.
Stjórnarmeðlimir, starfsmenn og aðrir sem kunna að vinna í þágu félagsins mega ekki taka þátt í afgreiðslu ættleiðingarmáls ef þeir eða menn þeim nákomnir eru aðilar málsins. 

Í tillögunni er lagt til að bætt verði við 6.greinina neðangreindu:

Komi upp aðstæður eða tilvik er varðar stjórnarmann þess eðlis að áframhaldandi stjórnaseta hans samrýmist ekki hagsmunum eða rekstri félagsins getur stjórn tekið ákvörðun um að víkja honum úr stjórn. Slík ákvörðun skal tekin með atkvæðagreiðslu á stjórnafundi. Ef stjórnarmanni er vikið úr stjórn í kjölfar atkvæðagreiðslu getur hann skotið þeirri ákvörðun til aðalfundar. Getur þá stjórn boðað til aukafundar félagsmanna sbr. 7. gr. samþykktar ÍÆ. 
Stjórnarmaður telst vera í leyfi frá stjórnasetu þar til ákvörðun liggur fyrir á aðalfundi eða aukafundi, eftir atvikum.
Stjórnarmaður sem brottvísun beinist að skal veitt færi á að tjá sig um málið áður en stjórn tekur ákvörðun. Að öðru leyti skal hann víkja við málsmeðferð og er ekki heimilt að taka þátt í atkvæðagreiðslu stjórnar.

Úr samþykktum Íslenskrar ættleiðingar

7. grein
Aðalfundur
Aðalfundur skal haldinn fyrir marslok ár hvert. Skal hann boðaður bréflega eða með öðrum sannanlegum hætti með minnst þriggja vikna fyrirvara. Til aukaaðalfundar skal boða með sama fyrirkomulagi og til aðalfundar samkvæmt 7. mgr.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt athugasemdum endurskoðanda félagsins skal lagður fram til samþykktar.
Gjaldskrá félagsins. 
Kjör stjórnar.
Ákvörðun árgjalds.
Breytingar á samþykktum félagsins.
Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Breytingar á stjórn félagsins skal tilkynna dómsmálaráðuneytinu áður en 14 dagar eru liðnir.
Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins skulu berast stjórn félagsins skriflega í síðasta lagi 31. janúar ár hvert og skulu þær tilgreindar í fundarboði.
Framboð til stjórnarkjörs skulu berast skriflega til skrifstofu félagsins í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund.

Aukafundi skal halda eftir ákvörðun stjórnar eða að kröfu endurskoðenda eða 2/3 félagsmanna. Skulu þeir boðaðir bréflega með minnst tveggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal koma fram tilefni fundarins.  

Fjögur stjórnarsæti eru laus til kosningar á næsta aðalfundi og vakin er athygli á að framboðsfrestur til stjórnarkjörs er samkvæmt samþykktum félagsins til klukkan 20:00 þann 2.mars 2022 og skal senda framboð til félagsins á netfangið isadopt@isadopt.is.

 


Svæði