Fréttir

Afmælisár 2008

Nú líður að afmæli ÍÆ því á næsta ári eru 30 ár síðan fyrsti vísir að félaginu varð til.  Það var félagið Ísland-Kórea sem síðar fékk nafnið Íslensk ættleiðing.

Stjórn ÍÆ óskar eftir fólki í Afmælisnefnd sem á að undirbúa viðburði afmælisársins í góðu samráði við stjórn og skemmtinefnd ÍÆ. 

Það væri gaman að fólk úr sem flestum hópum innan félagsins legði sitt af mörkum; reyndir foreldrar, ættleidd ungmenni og fólk sem bíður eftir barni.

Þeir sem vilja aðstoða hafi samband við skrifstofu sem allra fyrst, þetta verður skemmtilegt verkefni í vetur!


Svæði