Fréttir

Aukaaðalfundur 15.september kl: 20:00

Stjórn Íslenskrar ættleiðingar boðar til auka aðalfundar fimmtudaginn 15.september klukkan 20:00 í sal E á Hótel Hilton, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Dagskrá:
Stjórnarkjör

Framborðsfrestur til stjórnar rennur út fimmtudaginn 1.september kl. 20:00. Senda skal inn framboð á netfangið isadopt@isadopt.is

Á síðastliðinum aðalfundi náðist ekki að fullmanna stjórn félagsins sem samkvæmt samþykktum þess á að vera skipuð 7 fulltrúum, en er í dag skipuð 5 fulltrúum. Því er boðað til auka aðalfundar og eru félagsmenn hvattir til að bjóða krafta sína fram í þágu félagsins.


Svæði