Fréttir

Mbl.is - Ekkert samkynhneigt par ættleitt frá 2008

mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is/Árni Sæberg
Innlent | mbl | 31.3.2014 | 10:10 | Uppfært 10:46
 

Alls hefur 81 barn verið frumættleitt til Íslands erlendis frá á tímabilinu 2008-2012 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands og sýslumanninum í Reykjavík. Á sama tímabili hefur 71 par frumættleitt barn til landsins að utan. Ekkert par af sama kyni, búsett á Íslandi, hefur ættleitt barn (saman) að utan.

Þetta kemur fram í svari Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, þingmanni Framsóknarflokksins, um ættleiðingar. Hún spurði hve margir hefðu frá árinu 2008 ættleitt börn frá útlöndum, um hve mörg pör væri að ræða og hve mörg þeirra væru samkynhneigð pör. 

Þá kemur fram að helstu löndin sem ættleitt er frá séu Indland, Kína, Kólumbía, Tékkland og Tógó.

Jóhanna spurði ráðherra m.a. um það hvort ráðuneytið hefði fengið einhverjar athugasemdir um að erfitt væri fyrir samkynhneigð pör að ættleiða. „Ef svo er, er erfiðara fyrir samkynhneigð pör að ættleiða frá einhverjum ákveðnum löndum fremur en öðrum?“

Reglur upprunaríkis og móttökuríkis geta skarast

Í svari ráðherra kemur fram að Ísland sé aðili að alþjóðlegum samningi um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingar milli landa sem undirritaður hafi verið 1993 í Haag í Hollandi (Haag-samningurinn). Megintilgangur hans sé að tryggja að við ættleiðingar á börnum milli landa séu hagsmunir þeirra hafðir að leiðarljósi. Þá byggist samningurinn á því að ættleiðingar á börnum milli landa fari fram í samvinnu stjórnvalda upprunaríkis og móttökuríkis. Upprunaríkin, ekki síður en móttökuríki, setji reglur um hvaða skilyrði þurfi að vera uppfyllt til þess að ættleiðing milli landa geti komið til greina og jafnframt reglur um hæfi væntanlegra kjörforeldra.

Þá segir að oft fari reglur upprunaríkis og móttökuríkis saman en stundum skarist þær. Samkvæmt íslenskum lögum geti til að mynda einhleypir verið ættleiðendur en ekki öll upprunaríki heimila ættleiðingar til einhleypra. Þá séu ættleiðingar til para af sama kyni heimilar samkvæmt íslenskri löggjöf.

„Ráðuneytinu er kunnugt um að ekkert par af sama kyni, búsett á Íslandi, hafi ættleitt barn (saman) erlendis frá síðan lög um breytingu á lagaákvæðum er varða réttarstöðu samkynhneigðra (sambúð, ættleiðingar, tæknifrjóvgun), nr. 65/2006, tóku gildi. Staðan á Íslandi hvað þetta varðar er sambærileg og þegar kemur að öðrum norrænum ríkjum, en samstarfsríki þeirra eru þó mun fleiri en samstarfsríki Íslands,“ segir í svari ráðherra.

Telur farsælt að semja við ríki sem leyfa ættleiðingar samkynhneigðra

Þá spurði Jóhanna hvort það hefði verið skoðað að gera samninga við lönd sem ekki væri ættleitt frá sem stendur en leyfðu ættleiðingar til samkynhneigðra.

Í svari ráðherra segir að fyrirkomulagi um millilandaættleiðingar hér á landi sé þannig háttað að þær fari fram fyrir milligöngu löggiltra ættleiðingarfélaga. Það sé því mat ráðuneytisins að það sé hlutverk þeirra að hafa frumkvæði að því að afla nýrra sambanda við upprunaríki. Óski löggilt félag, eftir athugun á aðstæðum og þörfum tiltekins ríkis, eftir að taka upp samstarf við viðkomandi ríki veiti ráðuneytið liðsinni sitt við að koma slíku samstarfi á, enda verði talið að reglur ríkisins um málsmeðferð uppfylli öryggiskröfur Haag-samningsins um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingu milli landa. 

„Ráðuneytið hefur þó fengið þær upplýsingar frá Íslenskri ættleiðingu að það sé virkur samstarfshópur félagsins og Samtakanna '78 sem hefur unnið að því að kanna möguleika á ættleiðingum til samkynhneigðra. Ráðherra styður slíkar umleitanir og telur farsælt að gera samninga við þau ríki sem leyfa ættleiðingar til samkynhneigðra,“ segir í svari innanríkisráðherra.


Svæði