Fréttir

Fleiri góðar fréttir

Sjö fjölskyldur eru nú á vegum Íslenskrar ættleiðingar úti í Kína að sækja nýjustu fjölskyldumeðlimina. Það má segja að það gerist kraftaverk í hvert skipti sem barn sameinsat fjölskyldu sinni og það var sannarlega stór stund í lífi margra Íslendinga á mánudag síðastliðinn, þegar börnin hittu fjölskyldur sínar í fyrsta sinn.

Það er einnig ánægjulegt að segja frá því að tvær fjölskyldur til viðbótar fara frá Íslandi til Kína í sömu erindagjörðum á næstu vikum.


Svæði